Skemmtiferð hjá Iðnaðarmannafélagi Sauðárkróks til Ólafsfjarðar 10. ágúst 1952. Fararstjóri í ferðinni var Adolf Björnsson og bílstjóri Gísli Sigurðsson (Búddi) frá Sleitustöðum. Þess má geta að Guðrún Árnadóttir frá Lundi segir frá þessari ferð í tímaritinu Nýtt kvennablað 8. tbl 01.12. 1952. "Dálítil ferðasaga" Fremst t.h. eru Hólmfríður Árnadóttir og Reynir Ragnarsson. Næsta röð f.v. Guðrún Gísladóttir, Ingi Sveinsson, Gísli Sigurðsson (Búddi á Sleitustöðum) bílstjóri, Stefanía Þorláksdóttir, Þórður Jóhannesson og Þórður Sighvats. Röð þrjú. F.v. Guðrún Árnadóttir frá Lundi (með hendi við höfuðið), Jónatan Jónsson, óþekkt, óþekktur (á bak við Búdda) og Ólína Björnsdóttir (með höfuðfat). Röð fjögur f.v. Jón Þorfinnsson, Skarphéðinn Pálsson, Sigurjón Þóroddsson, (Stefanía Frímannsdóttir), Guðjón Sigurðsson og Jóhann Guðjónsson. Röð fimm f.v. Unnur Hallgrímsdóttir, Ingólfur Nikódemusson og Ísak Árnason. Næst aftast f.v. Gunnar Helgason, Hákon Pálsson og (tilg.) Jón Magnússon lengst t.h. Aftast eru Kristján Skarphéðinsson t.v. og Hjalti Jósepsson. Mynd svipuð þessari er í myndasafni Guðjóns Sigurðssonar.
Næstu 10 myndir þ. e. 18 til 28 eru frá opnun sjálfvirkrar símstöðfar í húsi Pósts og síma á Sauðárkróki í apríl 1968. Svæðisnúmer stöðfarinnar var 95. Forráðamenn Pósts og síma buðu fréttamönnum og gestum til fundar í Bifröst. Þar töluðu Jón Skúlason forstjóri símtæknideildar, Maríus Helgason umdæmisstjóri, Guðjón Ingimundarson, Friðrik Friðriksson læknir og Jóhann Salberg sýslumaður. Þorvarður Jónsson Yfirverkfræðingur lýsti svo stöðinni á staðnum, Fyrsta símtalið í hinni nýju stöð átti Jóhann Salberg sýslumaður við Gunnlaug Briem Póst- og símamálastjóra. Stöðfarstjóri hinnar nýju símstöðfar var Stefán Ólafur Stefánsson. Á myndinni talar Maríus Helgason umdæmisstjóri í Bifröst.
Sjá no 18. Á svölunum í Bifröst. Borðið næst f.v. Hulda Tómasdóttir, óþekkt (sér á bak), Dóra Þorsteinsdóttir, Elísabet Kemp, (Ingibjörg Jónasdóttir) (sennilega símastúlkur) og fjær Gestur Þorsteinsson.
Sjá no 18. Bifröst. F.v. (Hulda Sigurbjörnsdóttir), Guðbrandur Frímannsson, Jóhann Salberg sýslumaður, Guðjón Ingimundarson, Maríus Helgason umdæmisstjóri og Guðjón Sigurðsson.
Sjá no 18. Sjálfvirk símstöð á Sauðárkróki tekin í notkun vorið 1968. Stefán Pedersen ljósmyndari t.v. og Magnús Bjarnason kennari lengst t. h. óþekktur í miðið.
Sjá no 18. Sjálfvirka símstöðin á Króknum tekin í notkun vorið 1968. F.v. Halldór Þ. Jónsson, Kristján Skarphéðinsson, Guðjón Sigurðsson (með hatt), Stefán Pedersen (fjær), Haraldur Júlíusson og tveir óþekktir.
Sjá no 18. Jóhann Salberg sýslumaður talar fyrsta siímtalið í nýju sjálfvirku símstöðinni á Króknum vorið 1968 við Gunnlaug Briem Pósr- og símamálastjóra. Stefán Pedersen ljósmyndari t.v. og Hulda Sigurbjörnsdóttir fjær t. h.
Sjá no 18. Jóhann Salberg sýslumaður talar fyrsta simtalið í nýju sjálfvirku símstöðinni. T.v. við hann er sennilega Jón Skúlason forstjóri símtæknideildar.
Starfsmenn Rafveitu Sauðárkróks þeir Guðbrandur Frímannsson (t.v.) og Björn Jónsson (t.h.) setja niður ljósastaur við Skagfirðingabrautina (ca. um 1970).
Tilg. Myndirnar frá no 42 tið no 50 eru frá 200 ára afmæli Hóladómkirkju haldið í ágúst 1963. 56 prestar biskup Íslands Sigurbjörn Einarsson og vígslubiskup Hóladómkirkju Sigurður Stefánsson gengu skrúðbúnir til kirkju. Björn Björnsson prestur á Hólum flutti stólræðu, kirkjukór Sauðárkróks söng. Bjarni Benediktsson kirkjumálaráðherra flutti ávarp.
Slá no 42. Biskuparnir Sigurður Stefánsson vígslubiskup t.v. og Sigurbjörn Einarsson biskup Íslands t.h.. Fjær t.v. við gluggann er Jóhann Hafstein verðandi kirkjumálaráðherra.
Sjá no 42. Fremstur presta er Pétur Sigurgeirsson (síðar vígslubiskup). Fjær við vegginn er Kristján Eldjárn þjóðminjavörður (síðar forseti Íslands) og Halldóra Eldjárn.
Tilg. Myndir frá 42 til 50 (þ. e. 9 myndir). 200 ára afmæli Hóladómkirkju haldið í ágúst 1963. 56 prestar voru við athöfnina svo og biskup Íslands Sigurbjörn Einarsson og vígslubiskupinn Sigurður Stefánsson. Dómkirkjupresturinn Björn Björnsson flutti stólræðu, en ávarp flutti Bjarni Benediktsson kirkjumálaráðherra. Á myndinni er sr. Pétur Sigurgeirsson.