Næstu 10 myndir þ. e. 18 til 28 eru frá opnun sjálfvirkrar símstöðfar í húsi Pósts og síma á Sauðárkróki í apríl 1968. Svæðisnúmer stöðfarinnar var 95. Forráðamenn Pósts og síma buðu fréttamönnum og gestum til fundar í Bifröst. Þar töluðu Jón Skúlason forstjóri símtæknideildar, Maríus Helgason umdæmisstjóri, Guðjón Ingimundarson, Friðrik Friðriksson læknir og Jóhann Salberg sýslumaður. Þorvarður Jónsson Yfirverkfræðingur lýsti svo stöðinni á staðnum, Fyrsta símtalið í hinni nýju stöð átti Jóhann Salberg sýslumaður við Gunnlaug Briem Póst- og símamálastjóra. Stöðfarstjóri hinnar nýju símstöðfar var Stefán Ólafur Stefánsson. Á myndinni talar Maríus Helgason umdæmisstjóri í Bifröst.
Sjá no 18. Á svölunum í Bifröst. Borðið næst f.v. Hulda Tómasdóttir, óþekkt (sér á bak), Dóra Þorsteinsdóttir, Elísabet Kemp, (Ingibjörg Jónasdóttir) (sennilega símastúlkur) og fjær Gestur Þorsteinsson.
Sjá no 18. Bifröst. F.v. (Hulda Sigurbjörnsdóttir), Guðbrandur Frímannsson, Jóhann Salberg sýslumaður, Guðjón Ingimundarson, Maríus Helgason umdæmisstjóri og Guðjón Sigurðsson.
Sjá no 18. Sjálfvirk símstöð á Sauðárkróki tekin í notkun vorið 1968. Stefán Pedersen ljósmyndari t.v. og Magnús Bjarnason kennari lengst t. h. óþekktur í miðið.
Sjá no 18. Jóhann Salberg sýslumaður talar fyrsta siímtalið í nýju sjálfvirku símstöðinni á Króknum vorið 1968 við Gunnlaug Briem Pósr- og símamálastjóra. Stefán Pedersen ljósmyndari t.v. og Hulda Sigurbjörnsdóttir fjær t. h.
Sjá no 18. Jóhann Salberg sýslumaður talar fyrsta simtalið í nýju sjálfvirku símstöðinni. T.v. við hann er sennilega Jón Skúlason forstjóri símtæknideildar.