Kofabyggð vestan við sjúkrahúsið á Sauðárkróki sumarið 1984. Edda Lúðvíksdóttir (1955-) t.v. við kofann. Íris Baldvinsdóttir (1965-) með gítar og Guðfinna Gunnarsdóttir (1942-2012) situr með barn.
Sýningin "Konur á Króknum" sem fimm kvennasamtök settu upp í Barnaskólanum vorið 1997 en þar var sýnd vinnuaðstaða húsmæðra áður fyrr. Börnin eru Halldór Örn Kristjánsson (1991-) og Björg Árdís Kristjánsdóttir (1987-).
Í júní 1997 var afhjúpaður minnisvarði um tilurð fyrstu götunnar á Króknum, Frúarstígnum (nú Freyjugata), en hann var gerður í lok nítjándu aldar að tilstuðlan kvenna. Minnisvarðinn var gjöf frá 4 karlaklúbbum í bænum. Hulda Sigurbjörnsdóttir afhjúpaði minnisvarðann. Á myndinni eru f.v. Helga Sigurbjörnsdóttir, Steinunn Hjartardóttir, Páll Brynjarsson, Jón Ormar Ormsson og Jón Þórisson.
Bygging Ábæjar á Sauðárkróki vorið 1992. Verið að leggja snjóbræðslurör (Kobra) framleidd á Sauðárkróki. Jón Geirmundsson (1956-) til vinstri, hinn óþekktur.
Fylgst með fyrstu steinullinni koma í gegnum vélarnar í Steinullarverksmiðjunni í október 1997. F.v. Bragi Haraldsson, Róbert Haraldsson, Árni Guðmundsson, Björn Ragnarsson, Bent Beherendt, Heiðar Albertsson og Jóep Þóroddsson.
Úr fiskvinnslusal Fiskiðjunnar sumarið 1988. Frétt í Feyki þar sem Fiskiðn, félag fiskiðnaðrins hvetur til aukinnar mentunnar og fræðslu í sjávarútvegi.
Mynd tekin við Barnaskólann við Freyjugötu haustið 1998. Foreldrafélagið smíðaði leiktæki fyrir börnin. F.v. Sigurgísli Ellert Kolbeinsson, Ólafur Þorbergsson, Björn Svavarsson og Magnús Sigfússon.
Kálfur á leið til slátrunar í Sláturhúsi KS haustið 1993 slapp og synti mílu á haf út áður en hann náðist. Fremst í batnum er hugsanlega Ragnar Magnússon þá Haraldur Ingólfsson og næst stýrishúsinu er sláturhússtjórinn Árni Egilsson. Maðurinn í sjónum óþekktur.
Fyrsta skóflustunga tekin að B álmu Árskóla í ágúst 1999. F.v. Herdís Sæmundardóttir, Snorri Björn Sigurðsson bæjarstjóri, Helgi Sigurðsson, Þórarinn Sólmundarson, Stefán Guðmundsson, Guðmundur Guðmundsson, Steinunn Hjartardóttir, Óskar Björnsson, Sigurbjörg Guðjónsdóttir (framan við Óskar) og Selma Barðdal.
Króksmót. Ingvar Magnússon (1960-) þjálfari t.v. í rauðri peysu og sennilega Ómar Braga Stefánsson t.h. Á bak við við Ingvar t.h. eru Stefán Logi Haraldsson og Jón Arnar Magnússon.
Björn Jóhann Björnsson (1967-) afhendir vinning í happdrætti FÁS í janúar 1987. Hinir heppnu heita Jóhann Helgi Sigmarsson (1969-) t.v. og Sigurður Árnason (1968-). Vinningurinn var Ladan sem er í baksýn.
Minnisvarði Þórdísar, dóttur Ingimundar gamla, í Þórdísarlundi. Sunnan undir Vatnsdalshólum er Þórdísarlundur, skógarreitur sem Húnvetningafélagið í Reykjavík hefur ræktað og sinnt frá árinu 1952. Í Þórdísarlundi er minnisvarði um fyrsta innfædda Húnvetninginn, Þórdísi dóttur Ingimundar gamla, en hún er talin hafa fæðst þar á hörpu árið 895. Þar nærri stendur veiðihúsið Flóðvangur sem Veiðifélag Vatnsdalsár lét reisa árið 1964. Gönguleið liggur frá Þórdísarlundi að Þrístöpum.
Borð og myndarammi eftir Adam Magnússon Akureyri. Adam Magnússon er fæddur á Brimnesi í Ólafsfirði 3. september 1903, Látinn 12. nóvember 1984, Trésmíðasveinn á Akureyri 1930. Trésmiður á Akureyri.
Sýning á munum í eigu Andrésar Valberg var sett upp í Gagnfræðaskólanum á Sauðárkróki vorið 1988. Andrés gaf síðan Sauðárkrók stærstan hluta safnsins. Frá vinstri: Óþekktur, Jón Andrés Sveinn Valberg (1919-2002) Steingrímur Friðriksson (1906-1997), Marteinn Bergmann Steinsson (1909-2004), Óskar Örn Óskarsson (1973-).
Skrifstofa Sjóvá sem opnaði nýja skrifstofu að Skagfirðingabraut 9 Skr. síðla vetrar 1988. Umboðsmaður Sjóvá er Anna Pála Guðmundsdóttir við borðið t.h. og starfsmaður er Ásdís Sigríður Hermannsdóttir (1949-). við borðið t.v. Viðskiptavinur er óþekktur.
Frá hittingi félags þroskahamlaðra frá Reykjavík og Akureyri við Ásbyrgi í Miðfirði vorið 1991, þar sem haldin var grillveisla. En ákveðið var að hittast á miðri leið.
Frá vinstri Ingvi Þór umboðsmaður ferðaskrifstofunnar Úrval Útsýn á Blönduósi og Hallbjörn Kristjánsson sem vann ferð til Ítalíu í happdrætti ferðaskifstofunnar síðla vetrar árið 1998.