Tilg. Þing Sambands Skagfirskra kvenna í Bifröst. Við háborðið fjær f.v. Elínborg Hilmarsdóttir Hrauni, Lovísa Símonardóttir, Jónína Jónsdóttir, Pálína Skarphéðinsdóttir, Ingibjörg Hafstað og Helena Magúsdóttir. Í grárri peysu og rauðri skyrtu er Ingibjörg Jóhannesdóttir á Mið-Grund.
Fimmtugs afmæli Pálma Friðrikssonar frá Svaðastöðum í desember 1993 haldið í Ljósheimum. Frá vinstri Pálmi Friðriksson, Ásmundur Pálmason, Aðalsteinn Jakobsson frá Hvammstanga, Friðrik Pálmason, Pálmi Rögnvaldsson (sér á bak), Erlendur Hansen og Örvar Pálmason.
F.v. Marta Magnúsdóttir Stóra-Vatnsskarði, Þórey Jónsdóttir Keflavík, Elínborg Bessadóttir Hofsstöðum, Sólveig Árnadóttir Uppsölum, Anna Kristinsdóttir Hjalla, Anna Sigríður Hróðmarsdóttir Lundi, Anna Stefánsdóttir Hátúni , Margrét Ingvarsdóttir Ytri-Mælifellsá og óþekkt svo og tilefnið.
Jón Ísberg sýslumaður Húnvetninga (t.v.) og Þórhildur kona hans. Ófeigur Gestsson bæjarstjóri á Blönduósi t.h. (með gleraugu) við starfslok Jóns sem sýslumanns í apríl 1994. Samskonar mynd nr 749.
Tilg. Verðlaunaafhending Iþróttasambands fatlaðra á Hótel Sögu. Sitjandi f.v. Bára Steinsdóttir, Hallgrímur Eymundsson og Steinar Þór Björnsson. Mennirnir á bak við óþekktir.
Menn frá Síldarminjasafninu á Siglufirði komu til Sauðárkróks í júlí 1994 til að sækja síldarnót, sem varðveitst hafði á lofti gamla Barnaskólans við Aðalgötu, til að hafa á safninu. Til vinstri er Stefán Benediktsson og til hægri er Örlygur Kristfinnsson, þriðji óþekktur.
Frá Mjúkísmóti á Holtstjörn neðan Skörðugilsbæjanna, þar sem árlega er haldið ískappreiðamót, alla jafna á þorra. F.v. Sveinn Allan Morthens, Jón Hjörleifsson Kimbastöðum, Einar E. Gíslason Syðra-Skörðugili og Hróðmar Hjörleifsson Kimbastöðum.
Sigurður Sigurðsson lögreglumaður á Hvammstanga afhendir Gústaf Daníelssyni silunganet sem höfðu verið gerð upptæk úr sjó af veiðivörðum, en Hæstiréttur síðan dæmt þau lögleg.
Léttsveit Tónlistarskóla Skagafjarðar í janúar 1995. F.v. Kristján Kristjánsson á trommur, Gísli Þór Ólafssonar gítar, Rögnvaldur Valbergsson á tamborine, Arnfríður Hreinsdóttir bassi, Birgir Óli Sigmundsson trompett og Guðbrandur Guðbrandsson trompett.
F.v. Guðrún Sigurðardóttir Laugabakka, Gísli Júlíusson læknir Hvammstanga og Agnes Magnúsdóttir Hvammstanga. Tilgáta að Gísli læknir sé að láta af störfum.
Tölvufyrirtækið Nýherji hf. gefur Barnaskóla Sauðárkróks Talsjá II, sem notast við talkennslu barna sem eiga örðugt með mál, í ársbyrjun 1995. Á myndinni eru f.v. Gunnar M. Hannesson forstjóri Nýherja, Andrea Dögg Björnsdóttir kennari við Barnaskólann og Bergþóra Ketilsdóttir starfsmaður Nýherja.
Óþekkt samkoma. Lengst t. h. eru Páll Pétursson alþingismaður og kona hans Sigrún Magnúsdóttir. Þá er Stefán Guðmundsson alþingismaður fjórði f.h. aðrir óþekktir.
Guðmundur Ingþórsson (t. h.) formaður Hjálparsveitar skáta á Blönduósi tekur við 50 þúsund króna ávísun til kaupa á snjóbíl frá Kristófer Sverrissyni formanni Lionsklúbbs Blönduóss i október 1990.
Frá heimsókn fylkisstjóra Manitóba í Kanada, Georg Johnson í Skagafjörð sumarið 1990. þegar hann heimsótti ættingja sína. Á myndinni eru Richard lífvörður hans og Sigríður Friðjónsdóttir sýslufulltrúi. Myndin tekin í veislu á Hótel Mælifelli.
Fimm ættliðir. Myndin tekin á Sauðárkróki í janúar 1992. F.v. Sigurbjörg Ögmundardóttir. Ögmundur Svavarsson, Svava Ögmundardóttir, Maríanna Þorgrímsdóttir og Eyþór Hjálmarsson.
George Johnson fylkisstjóri í Manitóba í Kanada vitjar ættinga sinna að Litlu-Gröf í Skagafirði í júní 1990. Setið að veisluborði á Hótel Mælifelli við það tækifæri. Vinstra megin við borðið er annar f.v. Þórir Arngrímsson frændi fylkisstjórans, en þeir eru systrasynir, þá sennilega Doris, kona fylkisstjórans, næst trúlega Knút Aadnegard og Harald Bessason rektor Háskólans á Akureyri. T. h. við borðið næst er Snorri Björn Sigurðsson bæjarstjóri og þá George Jhonson fylkisstjóri. Aðrir óþekktir.
Jón Bjarnason skólastjóri á Hólum fagnar með stuðningsfólki sínu fyrir framan kosningaskrifstofu Vinstri-Grænna í Aðalgötunni á Sauðárkróki vorið 1999 að vera orðin þingmaður, en flokkur hans Vinstri-Grænir hrepptu uppbótarþingsætið í kjördæminu.
Óþekktur fundur í matsal Heimavistar Fjölbrautaskólans. F.v. Ragnar Arnalds ráðherra, Þorkell Þorsteinsson, Jón Hjartarson skólameistari, Anna Kristín Gunnarsdóttir, Sveinn Allan Mortens og Snorri Björn Sigurðsson bæjarstjóri.