Spaugstofan heimsækir Skagafjörð í ágúst 1995 en þá skemmti hún í Miðgarði. Á myndinni eru Spaugstofumenn fyrir framan Bláfell á Sauðárkróki ásamt aðdáendum sínum.
Lionsklúbbur Sauðárkróks færir Félagi eldri borgara hljóðkerfi að gjöf haustið 1996. Fjóla Þorleifsdóttir ljósmóðir (lengst t.h) þakkar gjöfina. Fjær t.h. stendur Guðmann Tóbíasson sem afhenti gjöfina fyrir hönd Lionsklúbbsins og hjá honum situr Sigmundur Pálsson. Þekkja má Rögnvald Gíslason við borðið nær, Áshildi Öfjörð við borðið fjær (ber í vegginn) og Sigríði Jóhannesdóttur t.h. við borðið fjær.
Héraðssýning kynbótahrossa á Vindmeimamelum vorið 1996. Þrír hæst dæmdu 4 vetra stóðhestar. F.h. Fengur (efstur) og Magnús Magnússon, Fleygur og Jóhann Þorsteinsson, Svartur og Guðmundur Sveinsson.
Frá vinstri Ingvi Þór umboðsmaður ferðaskrifstofunnar Úrval Útsýn á Blönduósi og Hallbjörn Kristjánsson sem vann ferð til Ítalíu í happdrætti ferðaskifstofunnar síðla vetrar árið 1998.
Mynd úr járnsmiðju Ingimundar Bjarnasonar, Suðurgötu 5 Skr. (Árbakka) vorið 1997, en smiðjan var starfrækt frá miðjum þriðja áratugn síðustu aldar fram á sjöunda áratuginn. Árni Guðmundsson (annar f.v.) segir frá smiðjunni. Til vinstri við Árna er Páll Brynjarsson og Haraldur Þórðarson t.h. Lengst t.h. er óþekktur.
Forsvarsmenn fyrirtækja á Króknum o.fl. sem gerðu Jóni Arnari Magnússyni tugþrautakappa kleift að einbeita sér alfarið að undirbúningi Ólympíuleikanna í Atlanta 1996. Standandi f.v. Júlíus Hafstein form. Ol-nefndar Íslands Snorri Björn Sigurðsson bæjarstjóri, Knútur Óskarsson stjórnarmaður í frjálsíþróttasambandinu, Einar Einarsson framkvæmdastjóri Steinullar, Þórólfur Gíslason kaupfélagsstjóri, Gestur Þorsteinson bankastjóri, Einar Svansson framkvæmdastjóri Fisk, og Steinunn Hjartardóttir forseti bæjarstjórnar Skr. Framan við eru Jón Arnar Magnússon tugþrautakappi t.v. og Gísli Sigurðsson þjálfari Jóns. Myndin tekin framan við Ráðhúsið í ágúst 1995.
Ársþing SSNV haldið í Félagsheimilinu á Blönduósi í ágúst 1994. Við borðið fjærst má þekkja f.v. óþekktur, Símon Traustason Ketu , Agnar Gunnarsson Miklabæ, Eyjólf Pálsson Starrastöðum, óþekktur og Erlend Eysteinsson Stóru-Giljá.
60 ára afmælishóf Verkalýðsfél. A-Hún. haldið í Félagsheimilinu á Blönduósi haustið 1990. Næst á myndinni er Valdimar Guðmannsson form. VAH og við hlið hans er Vigdís Óskarsdóttir starfsmaður verkalýðsfélagsins. Aðrir óþekktir.
Tumi Tómasson fiskifræðingur hjá Veiðimálastofnun sýnir hvernig á að ná kvörnum úr silungi til aldursgreininga á námskeiði um nýtingu silungs sem haldið var á Hólum vorið 1985.
Bændur bjóða heim sumarið 1996. Heimilisfólk og gestir á Syðri-Hofdölum. Á þessum árum bjuggu 5 ættliðir á Syðri-Hodölum sem eru á myndinni. Helga Rögnvaldsdóttir ættmóðirin (önnur f.h. í mið röð), Rannveig Jóna Traustadóttir (lengst t.h. í öftustu röð), Trausti Kristjánsson (lengst t.v. í öftustu röð), Atli Már Traustason (lengst t.h. í mið röð) heldur á Friðriki Andra Atlasyni. Sams konar mynd nr 1004.
Kristinn Einarsson Skagamaður tekur land á Reykjum að loknu Drangeyjarsundi vorið 1995. Var hann fimm og hálfan tíma að synda frá Drangey til lands og sá sjöundi sem þreytti Drangeyjarsund.
Álftir á flóanum við Hróarsdal vorið 1992. Skagfirskar álftir með gerfihnattasendi sem flugu til vetrarstöðva sinna nærri Glasgow í Skotlandi haustið 1992 voru 9 klukkustundir á leiðinni og flugu að jafnaði á 130 km hraða, flughæð 30-50m.
Frá hittingi félags þroskahamlaðra frá Reykjavík og Akureyri við Ásbyrgi í Miðfirði vorið 1991, þar sem haldin var grillveisla. En ákveðið var að hittast á miðri leið.
Páll Halldórsson yfirflugstjóri (t.v.) og Óttar Sveinsson blaðamaður. Tilefnið er kafli í þá nýútkominni bók Óttars "Útkall" 1994 þar sem segir frá björgun skipverja á Barðanum um borð í flugvélina Sif í mars 1987.
Verðlaun sem fegrunarnefnd Blöndósbæjar veitti fyrir snyrtimennsku haustið 1995 til tveggja aðila. Annars vegar til Upplýsingamiðstöðvar ferðamála í Brautarhvammi, fyrir einstaklega vel heppnaða endurbyggingu og nýtingu gamals húss og hins vegar fyrir fallega og vel hirta lóð að Árbraut 7. Á myndinni eru f. v. Páll Þórðarson með verðlaun Upplýsingamiðstöðvarinnar, Skúli Þórðarson bæjarstjóri og Sigursteinn Guðmundsson með verðlaun fyrir Árbraut 7.
Krakkar í Gagnfræðaskóla Sauðárkróks unnu til verðlauna í hjólreiðakeppni grunnskóla, sem fram fór á landinu haustið 1993. Hjólreiðameistarar taka við verðlaunum. Frá vinstri, Margrét Ágústa Sigurðardóttir (1980-), Ásgrímur Örvar Jónsson (1980-), Sveinbjörn Ólafur Ragnarsson (1958-) lögregluþjónn, Bríet Jóhannesdóttir (1980-), Björn Ingvi Sigurbjörnsson (1946-) skólastjóri og Hrannar Freyr Gíslason (1980-).
Þuríður Harpa Sigurðardóttir (t.v.) og Hólmfríður Guðmundsdóttir opnuðu handiðnaðar- og listmunaverslunina "Gallerí Villa Nova" haustið 1992 í kjallara Villa Nova.
Frétt í Feyki sumarið 1995 um hamingjusamt par á Króknum. Þau Judí Collin frá Massachusets í Bandaríkjunum og Jakob Ragnarsson Skr. kynntust með aðstoð heimilistölvu og gagnabanka á Keflavíkurflugvelli.
Viðurkenningar veittar fyrir snyrtilegar lóðir á Króknum sumarið 1996. F.v. Gunnar Pétursson og Páll Pálsson vegna áhaldahúss bæjarins, Dóra Magnúsdóttir og Halla Rögnvaldsdóttir á Skagfirðingabraut 11, Kristján Helgason og Dóra Sigurjónsdóttir í Hvannahlíð 2 , Viggó Jónsson og Rannveig Helgadóttir í Hólatúni 2.
Frá prófkjöri Framsóknar í janúar í N.v. kjördæmi, fyrir þingkosningarnar 1995, en slæmt veður tafði fyrir talningu. Á myndinni kemur Jóhannes Rikharðsson Brúnastöðum (t.v.) með kjörkassann úr Fljótahreppi í Framsóknarhúsið á Skr. og við honum tekur Sighvatur Torfason.
Námskeið fyrir trúnaðarmenn á vinnustöðum haldið í matsal slátuhúss KS í ársbyrjun 1989. Fremst eru Snorri Konráðsson frá MFA (t.v.) og Björn Sighvats kennari t.h. Aftar má þekkja f.v. Bjarna Halldórsson (vð súluna), Ólaf Guðmundsson (ber yfir öxlina á Birni) og Harald Þórðarson lengst t.h.
Fólk sem stóð að sýningunni "Konur á Króknum" sem sett var upp í Barnaskólanum við Freyjugötu afmælisárið 1997. F.v. Helga Sigurbjörnsdóttir, Jón Þórisson, Sigurlaug Magnúsdóttir og Aðalheiður Arnórsdóttir.
Frá afmælisárinu 1997 á Sauðárkróki, en þá voru 140 ár frá því Sauðárkrókur varð verslunarstaður, 90 ár frá því Sauðárkrókur varð sérstakt sveitarfélag og 40 ár frá því Sauðárkrókur fékk kaupstaðaréttindi. Myndin tekin á Faxatorgi í júlí 1997.
Úr revíunni "Glaðar tíðir" sem Umf. Tindastóll setti upp í Bifröst vorið 1997. Leikstjóri var Edda Guðmundsdóttir en Jón Ormar Ormsson samdi revíuna. Þekkja má f.v. Halldóru Helgadóttur, Guðbrand Frímannsson, óþekktur, Ásdísi Guðmundsdóttur, Guðbrand Guðbrandsson og óþekktur.
Söngsveitin Drangey (eða Skagfirska Söngsveitin) syngur í íþróttahúsinu í Varmahlíð, stjórnandi Eva Snæbjarnardóttir. Hugsanlega minningartónleikar um Jóhann Pétur Sveinsson sem haldnir voru haustið 1995.
Jóna Fanney Svavarsdóttir syngur við undirleik Tómasar Higgerson á söngskemmtun Karlakórs Bólstaðarhlíðarhrepps, sem haldin var að tilefni 70 ára afmæli kórsins í félagsheimilinu Húnaveri vorið 1995.
Vesturfarasetrið á Hofsósi í ágúst 1996, en þá heimsóttu forsetahjónin setrið. Ólafur Ragnar forseti er framan við húsið t.v. og Valgeir Þorvaldsson framan við húsið t.h.
Húsið Sandur á Hofsósi sem nú hýsir Vesturfarasetrið. Maðurinn til hægri vinstra megin á myndinni er Ólafur Ragnar Grímsson forseti hinn óþekktur, svo stendur Valgeir S. Þorvaldsson forstöðumaður setursins framan við húsið og kona hans Guðrún H. Þorvaldsdóttir er lengra t.h. Nær sér svo á bak Magnúsar H. Sigurjónssonar og konu hans Kristbjörgu Guðbrandsdóttur.
Forsetahjónin heimsækja Vesturfarasetrið á Hofsósi í ágúst 1996 en þau höfðu verið á 200 ára minningarhátíð um Bólu-Hjálmar. F.v. Guðrún Katrín Þorbergsdóttir forsetafrú, Guðrún H Þorvaldsdóttir, Vatni , Valgeir S Þorvaldsson forstöðumaður Vesturfarasetursins og Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands.
Þórhallur Ásmundsson (lengst t.h.) gerist blaðamaður Dags á Sauðárkróki í júlí 1986. Með honum á myndinni eru Jóhann Karl Sigurðsson framkvæmdastjóri Dags (lengst t.v.) og Hermann Sveinbjörnsson ritstjóri Dags.
Tilg. Hljómsveitin Fást sem starfaði á Króknum um og eftir 1985. F.v. Sigurður Ásbjörnsson, Úlfar Haraldsson, Guðbrandur Ægir Ásbörnsson og Magnús Helgason. Myndin tekin í Aðalgötunni á Króknum.