Sumarið 1995 gekkst Kiwanishreyfingin fyrir kynningarátaki á svokölluðum eiturlyfjavísi í baráttunni til varnar eiturlyfjum. Af því tilefni hjóluðu 4 ungir menn umhverfis landið og afhentu eiturlyfjavísinn á mörgum þéttbýlisstöðum. Á myndinni er Snorri Björn Sigurðsson bæjarstjóri að veita vísinum viðtöku, framan við Ráðhúsið á Króknum. Þekkja má Daníel Sighvats með hundinn. Hjalti Guðmundsson t.h. við Daníel, þá Jónas Snæbjörnsson og framan við Jónas er Snorri Björn Sigurðsson bæjarstjóri. Bak við Daníel sér í Stefaníu Stefánsdóttur.
Saumasmiðjan á Skagströnd í febrúar 1996, en í desember 1995 voru fimm ár liðin frá stofnun Saumasmiðjunnar. Á myndinni er verið að sauma norsku peysurnar.
Frá aflraunakeppni sem haldin var að Bjargi í Miðfirði í ágúst 1998. Grettishátíð. Keppendur f.v. Auðunn Jónsson, Ryan Wierra frá Bandaríkjunum (heimsmeistari í Hálandaleikum), Sæmundur Á Sæmundsson og Hjalti "Úrsus " Árnason.
Tilg. Frá afhjúpun minnisvarða um Sigurð Jónasson varðstjóra í Laugabrekku í Varmahlíð 1996, en hann var jafnframt forstöðumaður skógræktarstöðfarinnar í Varmahlíð.
Sigurvegarar í opnum flokki á skákþingi Norðurlands 1994. Frá vinstri, Matthías Keld 5,5v, Rúnar Sigurpálsson 5,5v og Stefán Andrésson 5v. Stefán er frá Bolungarvík og Matthías frá Reykjavík og kepptu þeir sem gestir. Fjær t.v. er Haraldur Hermannsson.
Frá afhjúpun minnisvarða um Sigurð Jónasson varðstjóra að Laugabrekku í Varmahlíð 1996, en hann jafnframt forstöðumaður skógræktarstöðvarinnar í Varmahlíð.
Frá ársþingi SSNV sem haldið var á Löngumýri sumarið 1996. Sigurður Tómas Björgvinsson (t.h.) starfsmaður kynningarmiðstöðvar Evrópurannsókna kynnir úrbætur í atvinnumálum í kjördæminu. Hinir eru Agnar Gunnarsson t.v. og Sveinn Allan Mortens.
Fjallkonan á Sauðárkróki 1993, Hjördís Jónsdóttir, en hún klæddist skautbúningi langömmu sinnar Sigrúnar Pálmadóttur frá Reynistað. Búningur þessi var saumaður á Sigrúnu fyrir Alþingishátíðina á Þingvöllum 1930.
Vélsmiðja Húnvetninga smíðaði dósasöfnunarílát sem vakti mikla athygli á vörusýningu á Blönduósi sumarið 1996. Á myndinni eru Tryggvi Gíslason, Eysteinn Jóhannsson og Vilhjálmur Stefánsson.
Reikisamtök Skagafjarðar með reikisamkomu á Hótel Mælifelli í febrúar 1996. Aðalhvatamaður að samkomunni var Árdís Björnsdóttir frá Vatnsleysu. Mynd við sama tilefni nr 993.
Tilg. Fagnaður hjá fólki með þroskahömlun. Myndin er líklega frá Siglufirði. Hægra meginn við borðið, við endann fjæra er Árni Heiðar Bjarnason á Siglufirði.
Guðmundur Sveinsson kjötiðnaðarmeistari KS með verðlaunaréttina sem hann vann til í keppni á sýningunni "Mat 96" sem fram fór í Smáranum í Kópavogi vorið 1996. Þar hlaut hann eitt gull, þrjú silfur og eitt brons.
Fundur sem iðnaðar- og viðskiptaráðuneytið stóð fyrir um atvinnumál á Sauðárkróki í ársbyrjun 1996. Vinstra megin við borðið næst eru f.v óþekktur, Jón Hjartarson skólameistari, Kristján Sigurpálsson Varmahlíð, Magnús Sigurjónsson Skr. og Hilmir Jóhannesson Skr. Aðrir óþekktir.
Fundur sem iðnaðar- og viðskiptaráðuneytið stóð fyrir um atvinnumál á Sauðárkróki í ársbyrjun 1996. Við borðið næst hægra megin má þekkja f.v. Snorra Björn Sigurðsson bæjarstjóra, Sigurð Ágústsson rafveitustjóra, Rögnvald Guðmundsson frá RKS og Birgi Gunnarsson framkvæmdastjóra Sjúkrahússins.
Fundur tileinkaður Jónasi Kristjánssyni lækni á Króknum og fyrsta forseta Náttúrulækningafélags Íslands haldin á Sauðárkróki haustið 1996 að tilstuðlan Ræðuklúbbs Sauðárkróks. T.v. má þekkja Sigurlaugu Magnúsdóttur, Sigrúnu Öldu Sighvats, Guðjón Ingimundarson og t.h. er Björn Hjálmarsson frá Mælifellsá.
Tilg. Bæjarstjórnarfundur í Safnahúsinu. F.v. Anna Kristín Gunnarsdóttir, (Bjarni Brynjólfsson), Stefán Logi Haraldsson, Snorri Björn Sigurðsson bæjarstjóri, (Steinunn Hjartardóttir í ræðustóli) Elsa Jónsdóttir, Pétur Valdimarsson og Björn Björnsson.
Talið frá vinstri: Guðrún Ragnheiður Sigurðardóttir- Jens Christian Urup og Hjálmar Jónsson. Myndin er tekin 25. maí 1987- lokið við að myndskreyta glugga í Sauðárkrókskirkju. Úr myndasafni Feykis 27. maí 1987. 14.tbl. 7. árg.
Karl Sigurbjörnsson fremstur- við veggin talið frá vinstri: 1. Ragnheiður Jónsdóttir. 2. Guðbjörg Jóhannesdóttir. 3. Ólafur Hallgrímsson. 4. Dalla Þórðardóttir. Myndin er tekin í Miklabæjarkirkju. Úr myndasafni Feykis.
Fólkið á Vestara-Hóli í Fljótum árið 1944. Talið frá vinstri: Sveinn Sigmundsson- Bjarni Kristjánsson- Hólmfríður Jónsdóttir- Sigmundur Jónsson- Indíana Sigmundsdóttir og Jón Sigmundsson. Gefandi: Alfreð Jónsson- Molastöðum.
Guðrún Sighvatsdóttir (t.v.) og María Björk Ásbjarnardóttir (t.h.)- skrifstofukonur hjá K.S. Frá árshátíð K.S. í Feyki 27. jan 1988. Úr myndasafni Feykis.
Björn Sverrisson (t.v.) og Óskar Stefán Óskarsson (t.h.). Myndin er tekin á Slökkvistöðinni á Sauðárkróki hjá Sk 1- nýjum brunabíl. Úr myndasafni Feykis.
Stjórn félags aldraðra á Sauðárkróki og framkvæmdastjóri Sjúkrahússins- talið frá vinstri: Birgir Gunnarsson- Sæmundur Hermannsson- Fjóla Þorleifsdóttir- Friðrik J. Friðriksson og Guðjón Ingimundarson. Myndin er tekin 27. apríl 1995 á Sjúkrahúsinu. Úr myndasafni Feykis.