Vorið 1991 gaf Lionsklúbbur Sauðárkróks, Sauðárkrókskirkju 60 lausa stóla. Á myndinni eru Lionsmenn ásamt sr. Hjálmari Jónssyni t.v. með stólinn. Hinn sem heldur á stólnum er Óskar Jónsson læknir. Þá er gestur fundarins Sigurður Þórólfsson t.v. í hjólastól.
Eyþórskvöld tileinkað Eyþóri Stefánssyni tónskáldi og heiðursborgara Sauðárkróks, haldið í Sauðárkrókskirkju 23. janúar 1997 (annað Eyþórskvöld var haldið á aldarafmæli hans 23. janúar 2001). Á fremri bekknum á myndinni er fjölskylda Eyþórs. F.v. Eyþór Einarsson, Ásgerður Þórey Gísladóttir, Auðunn Einarsson, Óli Páll Engilbertsson og Sigríður Einarsdóttir. Aftari bekkur f.v. sr Gísli Gunnarsson, Árni Ragnarsson og Brynjar Pálsson.
Tilg. Sauðárkrókskirkja 100 ára. Frá æfingu á leikatriðinu "Kirkjan okkar" sem Jón Ormar Ormsson samdi og sýnt var í 100 ára afmælismessu í kirkjunni í nóvember 1992.. Bragi Haraldsson t.v. undir altaristötflunni. Aðrir óþekktir.
Að lokinni messu biskups Ólafs Skúlasonar í Ketukirkju vorið 1991. F.v Lárus Björnsson í Neðra-Nesi (í kirkjudyrum), Rögnvaldur Steinsson á Hrauni, Hreinn Guðvarðason á Selá, Ebba Sigurbjörnsdóttir (biskupsfrú), Ólafur biskup, óþekktur, sr. Hjálmar Jónsson og Signý Bjarnadóttir.
Frá 50 ára vígsluafmælis Óspakseyrarkirkju í Bitrufirði í júlí 1990. F.v. Baldur Rafn Sigurðsson, Guðni Þór Ólafsson, Kristján Björnsson, Ólafur Skúlason biskup, Gísli Gíslason kirkjusmiður og Ágúst Sigurðsson.
Biskup Íslands messaði í Ketukirkju á Skaga vorið 1991. Að messu lokinni flutti Lárus Björnsson oddviti í Neðra-Nesi skemmtilega tölu í Skagaseli um sr. Hjálmar Jónsson sem hafði reynst hin mesta óveðurskráka.
Fjölnota fjárhús voru tekin í notkun á Hólum vorið 1992. Ámyndinni er sr. Bolli Gústavsson að blessa bygginguna. Heimismenn eru fjær en þeir sungu við athöfnina.
Nemendur Akureyrardeildar Myndlista- og handíðaskóla Íslands héldu sýningu í Safnahúsinu á Sauðárkróki vorið 1995. Á myndinni eru Sigurrós Stefánsdóttir og Ólafur Sveinsson. (ekki þeirra verk í bakgrunni).
Eldri borgarar taka í spil í Safnaðarheimilinu á Króknum. F.v. Sigríður Jóhannesdóttir frá Brúnastöðum, (Sveinn Jónsson frá Bjarnargili), Pála Pálsdóttir á Hofsósi og Steingrímur Friðriksson Sauðárkróki.
Tilg. Eitthvað um að vera í Varmahlíð. F.v. Elín Sigurðardóttir, Broddi Björnsson, Sigurður Haraldsson, Valborg Hjálmarsdóttir, Esther Ágústsdóttir, Kristín Jóhannesdóttir og Þórarinn Magnússon. Börnin og aðrir óþekktir.
Hestamiðstöðin á Gauksmýri hlaut hvattningarverðlaun Invest (Iðnþróunarfélag Norðurlands vestra) í janúar 2002. Á myndinni eru f.v. Guðmundur Skarphéðinsson stjórnarformaður Invest, Lárus Þ. Valdimarsson, Svanhildur Hall, Sigríður Lárusdóttir og Jóhann Albertsson. (Mynd frá sama tilefni nr 1629).
Kirkjuhátíð í Bifröst haustið 1982 þegar þess var minnst að 90 ár voru liðin frá vígslu Sauðárkrókskirkju. Við borðið næst t.v. má þekkja f.v. Jóhönnu, Maríu og Árna Blöndal.
Tilg. Frá afhjúpun minnisvarða við Frúarstíg þ.e. Freyjugötu á Króknum sumarið 1997 um framtak kvenna á Króknum í lok nítjándu aldar. Minnisvarðinn er gjöf frá fjórum karlaklúbbum í bænum.
Tilg. Frá afhjúpun minnisvarða við Frúarstíg þ.e. Freyjugötu sumarið 1997, um framtak kvenna á Króknum í lok nítjándu aldar. Það voru 4 karlaklúbbar á Króknum sem gáfu minnisvarðann.
Frá afhjúpun minnisvarða um Hermann Jónasson fyrrverandi forsætisráðherra á Syðri-Brekkum í Blönduhlíð haustið 1997 T.h. á myndinni er Steingrímur Hermannsson og t.v. við hann er Edda Guðmundsdóttir kona hans. Lengst t.h. er hugsanlega Pálína Hermannsdóttir.
Samkoma eldri borgara í Bifröst. Við borðið t.v. eru Valberg Hannesson og Áshildur Öfjörð. Næsta borð f.v. óþekkt kona við vegginn, Steingrímur Friðriksson, Kristján Sölvason, María Ragnarsdóttir Aadnegard, Sigurlaug Antonsdóttir og Kristín Sölvadóttir. Fjærst við vegginn er svo Herdís Sigurjónsdóttir.
Félagsstarf eldri borgara í Safnaðarheimilinu. Konurnar eru f.v. Sigríður Jóhannesdóttir frá Brúnastöðum (sést að hluta), Hulda Gísladóttir, Guðbjörg Hjálmarsdóttir, óþekkt fjærst og Björg Guðmundsdóttir frá Vatni. Aðrar óþekktar.
Kennarar í verkfalli, hugsanlega 1995. Myndin er tekin á Sæmundargötunni, í húsi Verkalýðsfélaganna (nú Hús frímtímans). Efri röð frá vinstri: Helga Haraldsdóttir, Ævar Buthman, Kristján Bjarni Halldórsson og Guðbrandur Guðbrandsson í símanum. Sitjandi við borðið: Kristbjörg Kemp, Konráð Gíslason, Ragnheiður Matthíasdóttir, Valgeir Kárason, Bryndís Björgvinsdóttir og Árni Stefánsson lengst t.h.
Óþekktur fundur í Safnahúsinu. Fremsta röð f.v.:. Anna Halldórsdóttir, Katrín Jóelsdóttir og Anna Margrét Guðbrandsdóttir. Næsta röð f.v.: Hólmfríður Jóna Línberg, óþekkt og Jón Hreinsson. Aftast er svo Guttormur Óskarsson.
Veisla á Sjúkrahúsinu á Sauðárkróki. Tilefnið er að 20 voru liðin frá því Heilsugæslan tók til starfa. Við borðið t.v. er Sigurpáll Árnason í Lundi. Guðjón Ingimundarson er fyrir miðju og kona hans Ingibjörg Kristjánsdóttir lengst t.h.
Fundur í Safnahúsinu um skagfirsku málarana vorið 1997 þar sem Aðalsteinn Ingólfsson listfræðingur hélt erindi. F.v. Anna Kristín Gunnarsdóttir fundarstjóri, Sigurrós Stefánsdóttir verðandi listamaður og Aðalsteinn Ingólfsson listfræðingur.
Kennarar í Laugabakkaskóla undirbúa móðurmálsviku í nóvember 1989. F.v. Sigrún Einarsdóttir, Mjöll Matthíasdóttir, Sigríður Lárusdóttir, Marinó Björnsson, Kristín Arnþórsdóttir, Jóhann Albertsson skólastjóri og Herdís Brynjólfsdóttir.
Lionsklúbbarnir á Sauðárkróki stóðu fyrir samkeppni meðal grunnskólanema um gerð friðarveggspjalds vorið 1990. F.v. Páll Pálsson (1946-), formaður Lionsklúbbs Sauðárkróks ásamt verðlaunahöfum þeim, Björgvin Benediktssyni (1977-), Ingibjörgu Stefánsdóttur (1976-) og Helenu Magnúsdóttur (1976-).
Frá vígslu nýju brúarinnar yfir Vesrurósinn haustið 1995. Þekkja má fremsta f.v. Frank Michelsen, Pál Péturson ráðherra, Halldór Þ. Jónsson sýslumann, Ottó Michelsen, Stefán Guðmundsson alþingismann, óþekkt stúlka, Gunnar Guðmundsson hjá Vegagerðinni, óþekktur, Snorri Björn Sigurðsson bæjarstjóri, Pálmi Jónsson alþingismaður og sr. Hjálmar Jónsson.
Frá vígslu brúarinnar yfir Vesturósinn haustið 1995. Halldór Blöndal samgönguráðherra klippir á borðann, aðrir á myndinni eru Helgi Hallgrímsson vegamálastjóri lengst t.v. Stúlkan er Sigríður Viggósdóttir (skæraberi) þá Einar Gíslason tæknifræðingur og Guðmundur Sigurðsson brúarsmiður lengs t.h.
Vígsla brúarinnar yfir Vesturósinn haustið 1995. F.v. Halldór Blöndal samgönguráðherra, Einar Gíslason tæknifræðingur, Sigríður Viggósdóttir skæravörður, Guðmundur Sigurðsson brúarsmiður og Helgi Hallgrímsson vegamálastjóri.
Brúarvinnuflokkur Guðmundar Sigurðssonar frá Hvammstanga við byggingu brúarinnar yfir Vesturósinn sumarið 1994. F.v. Marteinn Reimarsson, Helgi Kristjánsson, Hannes Ársælsson, Örlygur Eggertsson, Gunnar Þorvaldsson, Jakop Jóhannesson og Sigurður Hallur Sigurðsson.
Sumarið 1995 var þess minnst á Hvammstanga að 100 ár voru liðin frá því staðurinn varð löggiltur verslunarstaður. Á myndinni er Hólmfríður Bjarnadóttir (t.v. við jeppann) að leiða fólk um söguslóðir verslunar á Tanganum.
Minnisvarði um framtak kvenna á Króknum í lok nítjándu aldar var afhjúpaður á horni Skólastígs og Freyjugötu vorið 1997. Minnisvarðinn er gjöf frá 4 karlaklúbbum á Sauðárkróki. T.v. er Steinunn Hjartardóttir að flytja ræðu. Konurnar til hægri eru f.v. Kristín Sölvadóttir, Hulda Sigurbjörnsdóttir, Sigurlaug Magnúsdóttir, María Lóa Friðjónsdóttir, Anna Halldórsdóttir, Aðalheiður Arnórsdóttir og Helga Sigurbjörnsdóttir.
Frá afhjúpun minnisvarða um konur á Króknum í lok nítjándu aldar á horni Skólastígs og Freyjugötu vorið 1997. T.v. Árni Blöndal á tali við Kristínu Sölvadóttur. Konurnar eru f.v. Hulda Sigurbjörnsdóttir, Sigurlaug Magnúsdóttir (á bak við Huldu), María Lóa Friðjónsdóttir, Anna Halldórsdóttir, Helga Sigurbjörnsdóttir og Steinunn Hjartardóttir.
Vorið 1997 var afhjúpaður minnisvarði á Sauðárkróki sem stendur á mótum Skólastígs og Freyjugötu, um konur á Króknum í lok nítjándu aldar. Fremst t.v. við minnisvarðan eru Hulda Sigurbjörnsdóttir og Árni Blöndal. T.h. við Árna eru svo Helga Sigurbjörnsdóttir og Steinunn Hjartardóttir. María Lóa Frðiðjónsdóttir er svo til vinstri við Huldu.