Þorrablót á Ketilási í Fljótum í janúar 1997. "Hrútasýning". F.v. Rikharður Jónsson Brúnastöðum, Inga Jóna Stefánsdóttir, Þórður Axelsson, Bergþóra Pétursdóttir Stórholti og óþekktur hrútur, gæti verið Númi Jónsson.
Tilg. Frá bæjarskrifstofunni á Króknum. Næsr t.v. Elsa Jónsdóttir og Matthías Viktorsson bak við hana. Sennilega Inga Adreassen lengst t.h. og Engilráð Sigurðardóttir önnur f.h. Maðurinn í horninu óþekktur.
Ítölunefnd fyrir Eyvindasta- og Auðkúluheiði kynnir niðurstöður nefndarinnar á fundi í Varmahlíð vorið 1985, en talið er að heiðarnar þoli ekki það beitarálag sem á þeim hefur verið. Á myndinni eru f.v. Sveinn Runólfsson landgræðslustjóri, Andrés Arnalds frá Landgræðslunni, Jóhann Guðmundsson, Stapa, Sigurpáll Árnason, Lundi og Ólafur Dýdmundsson, landnýtingarráðunautur í ræðustóli.
Aðalfundur Sauðárkróksdeildar KS vorið 1985. Marteinn Friðriksson framkvæmdastjóri Fiskiðjunnar við ræðupúltið og t. h. við hann Ólafur Friðriksson kaupfélagsstjóri og Firðrik Sigurðsson (sennilega deildarstjóri Sauðárkróksdeildar).
Kiwanisklúbburinn Drangey gað 7 ára krökkum á Króknum reiðhjólahjálma. Hugsanlega er þarna verið að afhenda hjálma við lögreglustöðina. Sveinbjörn Ragnarsson lögreglumaður t.v. og Hallur Sigurðsson kiwanismaður t.h.
Saumakonur á saumastofu KS á Hofsósi (síðar Íslenska Fánasaumastofan ehf.) að sauma íslenska fánann sumarið 1991 en von var á Vigdísi forseta í Fjörðinn og því nóg að gera. F.v. Guðbjörg Guðnadóttir, Svanhildur Guðjónsdóttir og Halldóra Márusdóttir.
Bjarni Jónsson sagnfræðingur (t.v), Jóhanna Lára Pálsdóttir landfræðingur og Páll Brynjarsson stjórnmálafræðingur vinna að gerð svæðisskipulags fyrir Skagafjörð (jún. 1995, sem gert er ráð fyrir að verði tilbúið síðla árs 1997.
Ásdís Ármannsdóttir sýslufulltrúi á Sauðárkróki, veitir viðtöku í janúar 1997 málverki af Sigurði Sigurðssyni sýslumanni, sem Sigurður sonur Sigurðar sýslumanns málaði og gaf sýslumannsembættinu.
Dansskemmtun eldri borgara í Bifröst. Næst t.v. Geirmundur Valtýrsson spilar á harmóniku þá Þórey Jóhannsdóttir og Þórður Eyjólfsson og María og Árni Blöndal.
Álfadans, en ungmennafélugin Tindastóll og Smári voru með álfadans um áramót á árunum 1995 til 2000. Næst eru Jóhanna Sigurðardóttir og Kristján Runólfsson.
María Lóa Friðjónsdóttir starfsmaður Landsbankans á Sauðárkróki afhendir Jóni Arnari Magnússyni tugþrautarmanni í Tindastóli styrk í verkefninu "Sydney 2000" í janúar 1997.
Minnisvarði um landpóstana afhjúpaður að Stað í Hrútafirði vorið 1993. Minnisvarðann gerði Grímur Marinó Steindórsson. Það eru bræðurnir á Stað, Magnús (t.v.) og Eiríkur Gíslasynir sem standa við minnisvarðann en þeir beittu sér fyrir gerð hans. Ræðumaður óþekktur.
Framkvæmdastjóri og veitingahúsaeigendur á Sauðárkróki sem stóðu að Sumarsæluviku 1994. F.v. Örn Ingi Gíslason framkvæmdastjóri sæluvikunnar, Guðmundur frá Hótel Mælifelli, Vigfús frá Áningu, Guðmundur og Eydís frá Pollanum, Elías frá Hótel Mælifelli, og María Björk frá Kaffi Krók.
Tilg. Verðlaunaafhending Iþróttasambands fatlaðra á Hótel Sögu. Sitjandi f.v. Bára Steinsdóttir, Hallgrímur Eymundsson og Steinar Þór Björnsson. Mennirnir á bak við óþekktir.
Óþekkt samkoma. Lengst t. h. eru Páll Pétursson alþingismaður og kona hans Sigrún Magnúsdóttir. Þá er Stefán Guðmundsson alþingismaður fjórði f.h. aðrir óþekktir.