Tilg. Veisla á Hótel Mælifelli haustið 1996, sem Fiskeldisfyrirtækið Máki efndi til, þar sem fiskurinn barri var á borðum. Annar f.v. er Rúnar Bachmann og lengst t.h. er Haraldur J. Haraldsson. Aðrir óþekktir.
Í Árgarði var haldið kaffisamsæti og dagskrá til heiðurs Indriða G. Þorsteinssyni í apríl 1998 en þá varð hann 72 ára. Frá vinstri Indriði G. Þorsteinsson (1926-2000), Hrönn Sveinsdóttir (1936- kona Indriða), Hjalti Pálsson og Haukur Hannesson. Hægra megin á myndinni er Hannes Pétursson (1931-).
Þorrablót á Ketilási í Fljótum í janúar 1997. "Hrútasýning". F.v. Rikharður Jónsson Brúnastöðum, Inga Jóna Stefánsdóttir, Þórður Axelsson, Bergþóra Pétursdóttir Stórholti og óþekktur hrútur, gæti verið Númi Jónsson.
Guðmundur Sveinsson (1960-) Kjötiðnaðarmeistari KS með verðlaunarétti á sýningunni Matur "96 sem fram fór í Smáranum í Kópavogi vorið 1996 en hann fékk eitt gull þrjú silfur og eitt brons. Sams konar mynd nr 987.
Skemmtinefnd á Þorrablóti í Höfðaborg á Hofsósi 1993. Jón Björn Sigurðsson, Jóhanna Kristjánsdóttir, Sigríður L. Guðlaugsdtóttir, Ingibjörg Jónsdóttir, Bryndís Óladóttir, Agnes Gamalíelsdóttir og Pálmi Rögnvaldsson í ræðustóli.
Þorrablót Fljótamanna á Ketilási í janúar 1991. Skemmtinefndin á blótinu. Frá vinstri, Benjamín á Stóru-Reykjum, Kristinn á Molastöðum, Trausti Sveinsson á Bjarnargili, Ómar Ólafsson á Laugalandi og Pétur Guðmudsson á Hraunum (1916-2010).
Pálmi "svaði" Friðriksson (1943-1998). Mynd tekin í fimmtugsafæmli hans sem haldið var í Ljósheimum í desember 1993. Á myndinni eru ferðafélagar hans úr Spánarferð að syngja brag um hann. Harmonikuleikararnir eru Hermann Jónsson frá Lambanesi t.v. og Sigurður Björnsson. Svala Jónsdóttir kona Pálma er lengst t.h.
Hljómsveit Geirmundar ásamt fleirum, frá vinstri, Geirmundur Valtýsson (1944-), Helga Möller, Sólmundur Friðriksson (1967-), Magnús Kjartansson, Kristján Óskar Balvinsson (1968-), óþekkt, óþekktur og Eiríkur Hilmisson (1963-).
Kynningardagur í Hólaskóla vorið 1999. f.v. Ásta Skarphéðinsdóttir frá Úlfsbæ í Bárðardal, Guðrún Hjaltadóttir frá Raftholti í Holtum og Matthildur Jónsdóttir frá Selfossi nemar á ferðamálabraut.
Hljómsveit Geirmundar ásamt fleirum. F.v. Ari Jónsson, Sólmundur Friðriksson (1967-), Guðrún Gunnarsdóttir (1963-), Kristján Óskar Balvinsson (1968-), Eiríkur Hilmisson (1963-), Magnús Kjartansson, óþekktur, Geirmundur Valtýsson (1944-), óþekktur og Berglind Jónasdóttir.
Jóhann Guðmundsson (1924-) "Jói á Stapa" heldur uppá 70 ára afmæli sitt í Árgarði í janúar árið 1994. Kristján Stefánsson frá Gilhaga þenur harmonikkuna.
Dægurlagakeppni Kvennfélags Sauðárkróks vorið 1994. Frá vinstri Kristján Gíslason (1969-), Vigdís Gígja Ingimundardóttir (1977-), Róbert Óttarsson (1972-) og Valdís Guðbrandsdóttir (1977-). Sigurvegari keppninnar var Björn Hannesson tónlistarmaður á Hvammstanga.
Dægurlagakeppni Kvenfélags Sauðárkróks vorið 1994. Bjarni Dagur Jónsson kynnir, Lovísa Símonardóttir (1948-) formaður undirbúningsnefndar, Guðbrandur Jón Guðbrandsson (1964-) formaður dómnefndar, Björn Hannesson höfundur vinningslagsins og Heiðrún Jónsdóttir textahöfundur lagsins.
Fyrir utan Skagfirðingabraut 45, Vátryggingafélag Vís. T.v. Arna Kristjánsdóttir (1968-) í rauðri úlpu og Selma Barðdal (1974-). í blárri peysu. Aðrir óþekktir.
Fyrir utan Skagfirðingabraut 45, Vátryggingafélag Íslands. Fremstir á myndinni eru t.v. Halldór Hlíðar Kjartansson (1972-) og Óli Viðar Andrésson (1972-).
Leikritið Skugga-Sveinn var sett upp hjá Leikfélagi Blönduóss á Húnavöku 1985. Leikstjóri var Oktavía Stefánsdóttir og Njáll Þórðarson lék Skugga-Svein. Um sumarið var svo farið með sýninguna til Svíþjóðar og Noregs.
Tilg. Leikritið Skugga-Sveinn eftir Matthías Jochumsson sem sett var upp af Leikfélagi Hvammstanga í febrúar 1996. Jón Daníelsson lék Skugga-Svein. Leikstjóri var Hörður Torfason.
Tilg. Leikritið Skuggs-Sveinn eftir Matthías Jochumsson sem sett var upp af Leikfélagi Hvammstanga síðla vetrar 1996. Leikstjóri Hörður Torfason. Jóhannes Kári Bragason t.v. og Sólrún Dögg Árnadóttir.
Tilg. Leikritið Skugga-Sveinn eftir Matthías Jochumssonar sem sett var upp af Leikfélagi Hvammstanga síðla vetrar 1996 í leikstjórn Harðar Torfasonar. (Jóhannes Kári Bragason og Sólrún Dögg Árnadóttir)