Tilg. Á Alþýðusönghátið sem haldin var á Sauðárkróki í júní 1997 sungu þátttakendur á hátíðinni við leiði Stefáns Guðmundssonar Íslandi í Sauðárkrókskirkjugarði.
Sveinn Guðmundsson með hryssuna Hrafnkötlu í taumi á Landsmóti hestamanna á Vindheimamelum 1990 þar sem Hrafnkatla ver í öðru sæti hryssna með afkvæmi.
Jóhann Magnússon á Stormi frá Sauðárkróki sem sigraði í tölti, fjógangi og tvíkeppni í íþróttakeppni Hestaíþróttadeildar Skagafjarðar sem fram fór á nýjnum skeiðvelli Léttfeta við Flæðagerði í júní 1985.
Folald sem Sigurður Ólason stefsmaður RARIK fann í skurði skammt frá Varmahlíð í nóvember 1988 í 9 stiga frosti. Eigandinn Markús Sigurjónsson á Reykjarhóli er fyrir framan folaldið.
Fjölskyldan sem rak Hótel Djúpuvík á Strödum sumarið 1987. F.v. Ásbjörn Þorgilsson, Eva Sigurbjörnsdóttir, Kristjana María og Arnar Logi Ásbjörns börn.
Lið Tindastól á Pollamóti eldri manna í knattspyrnu sem haldið var á Akureyri sumarið 1997. Aftari röð f.v. Ómar Bragi Stefánsson, Gunnar Guðmundsson, Óskar Björnsson, óþekktur, Páll Ragnarsson, og Kristján Blöndal. Fremri röð f.v. Stefán Ólafsson, Árni Stefánsson og Þórhallur Ásmundsson.
Fótboltalið Hvatar á Blönduósi sem sigraði í Stígandamótinu í innanhússknattspyrnu í íþróttahúsinu á Blönduósi í janúar 1995. Aftari röð f.v. Ævar markvörður, Sveinbjörn, Guðmundur og Páll Leó. Fremri röð f.v. Helgi, Hörður, Gísli og Jón Óskar.
Stjórn Umf. Tindastóls á 80 ára afmæli félagsins árið 1987. Efri röð f.v Rúnar Björnsson varaformaður, Matthías Viktorsson meðstjórnandi og Óskar G. Björnsson ritari. Neðri röð f.v. Páll Ragnarsson formaður og Stefán Logi Haraldsson gjaldkeri.
Eldri borgarar á Króknum taka í spil í Safnaðarheimilinu. Á borðinu t.v. má þekkja Huldu Gísladóttur (í rauðri peysu) og Sigurð Stefánsson og t.h sér á vanga Sigurjóns Sveinssonar. Konan í rósótta kjólnum við borðið fjær er Sesselja Ólafsdóttir (Lóa frá Daðastöðum). Aðrir óþekktir.
Eldri borgarar á Króknum taka í spil í Safnaðarheimilinu. Við borðið t.v. fjær eru Jósafat Sigfússon og Hólmfríður Jónasdóttir. Standandi við dyrnar eru Eiríkur Björnsson frá Gili t.v. og Guðmundur Andrésson dýralæknir. Þá eru systkinin Kristín og Sveinn Sölvabörn við borðið t.h. Aðrir óþekktir.
Eldri borgarar taka í spil í Safnaðarheimilinu á Króknum. Við borðið fjærst er Sveinn Sölvason og við miðborðið eru fjær Viggó Sigurjónsson og Sigríður Sigtryggsdóttir frá Skefilstöðum, þá Eiríkur Björnsson frá Gili og Guðvin Jónsson Skr. Við borðið næst t.h eru f.v. Bergur Magnússon frá Unastöðum, Guðrún B. Sigurðardóttir og sennilega Hólmfríður Sveinsdóttir. Aðrir óþekktir.
Lið Tindastóls í körfubolta sem varð Íslandsmeistari í 1. deild árið 1988. Aftari röð f.v. Björn Sigtryggsson, Jón Már Guðmundsson, Ágúst Kárason, Karl Jónsson, Eyjólfur Sverrisson og Kári Marísson þjálfari. Fremri röð f.v. Birgir Valgarðsson, Sverrir Sverrisson, Kristinn Baldvinsson og Jóhann Magnússon.
Körfubolti í íþróttahúsinu á Króknum. Í nóvember 1989 komu þeir erlendu leikmenn sem leika í Úrvalsdeildinni til Sauðárkróks og léku við Tindastól og unnu auðveldan sigur. Sverrir Sverrisson er fjærst en aðrir óþekktir.
Jón Bjarnason skólastjóri í ræðustóli og Pétur Sigurgeirsson biskup við hlið hans. Hugsanlega er þetta á prestaráðstefnunni "Friður á jörð" sem var haldin á Hólum sumarið 1982.
Frá talningu atkvæða í alþingiskosningunum vorið 1983 í Félagsheimilinu Bifröst. Það er sennilega Einar Guðlaugsson formaður yfirkjörstjórnar Norðurlands vestra sem er að losa kjörkassann. T.h. við kassann er Rúnar Bachmann.
Á fjórðungsþingi norðlendiga á Sauðárkróki haustið 1982 héldu norðvestlendingar "Kjallarafund" í kjallara Heimavistar Fjölbrautaskólans til að ræða "Tímamótasamþykkt" Blönduósinga (sjá Feyki 16. tölubl. '82). Á myndinni eru f.v. Sigurður Eymundsson, Þórður Þórðarson, Jón Dýrfjörð, Ófeigur Gestsson, óþekktur (á bak við), Óttarr Propé (við enda borðsins), Adolf Berndsen, Axel Axelsson, Magnús H. Sigurjónsson og Brynjólfur Sveinbergsson.
Hugsanlega "Kjallarafundur" á Fjórðungsþingi Norðlendinga á Sauðárkróki haustið 1982. Vinstra megin við borðið f.v. Aðalheiður Arnórsdóttir, Jón Hjartarson, Þórður Skúlason og Hilmar Kristjánsson við enda borðsins. Hægra megin við borðið má þekkja Jón Dýrfjörð annan f.v. og Þórð Þórðarson við hlið hans. Aðrir óþekktir.
Frambðsfundur Borgaraflokksins í Miðgarði fyrir alþingiskostningarnar 1987. Þórður Erlingsson frá Kringlumýri í ræðustóli og Hrafnhildur Valgeirsdóttir, Blönduósi.
Eitthvað um að vera á Hólum í Hjaltadal, hugsanlega Hólahátíð. Mennirnir þrír í annari röð eru f.v. Snorri Björn Sigurðsson, Egill Bjarnason og Þorbjörn Árnason. Aðrir óþekktir.
Nefnd um aukna þátttöku kvenna í stjórnmálum hélt fund á Kaffi Krók í janúar 1999. Frá vinstri við enda borðsins Sif Friðleifsdóttir og Una María Óskarsdóttir, þá Signý Jóhannesdóttir, Anna Kristín Gunnardóttir, Herdís Sæmundardóttir og Elín Líndal. Konurnar við borðið nær óþekktar.
þrír af sjö þátttakendum í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi fyrir alþingiskostningarnar 1995. F.v. Ágúst Sigurðsson Geitaskarði, Sigfús Jónsson Söndum og Hjálmar Jónsson Sauðárkróki.
Gestur Þorsteinsson umdæmisstjóri rotaryhreyfingarinnar á Íslandi á þingi hreyfingarinnar semhaldið var á Sauðárkróki í júní 1993. T.v við hann eru Jón Hákon Magnússn (nær) og Ólafur Helgi Kjartansson. Til hægri er svo Ab Boers alþjóðaforseti rotary.
Sr. Hjálmar Jónsson Sauðárkróki fyrir miðju og Sigfús Jónsson á Söndum t.h. en þeir tóku báðir þátt í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Norðurlandskjördæmi vestra fyrir alþingiskostningarnar 1995.
Halldór Blöndal landbúnaðarráðherra (t.h.)flytur ávarp við vígslu fjölnota fjárhúss á Hólum vorið 1992. T.h. má sjá sr. Bolla Gústavsson en hann vígði og blessaði bygginguna. Þá er einnig Gísli Pálsson á Hofi við hlið Bolla.
Í tengslum við vinabæjarmót sem haldið var á Sauðárkróki í júní 1993 var sett upp málvarkasýning í Sfnahúsinu með 19 málverkum í eigu Listasafns Skagfirðinga og Sauðárkróks eftir sex skagfirska málara. Sýningin bar heitið Blátt er landið.
Fundur með Halldóri Blöndal landbúnaðarráðherra í Félagsheimilinu á Blönduósi í mars 1995. Þekkja má Erlendur Eysteinsson á Stóru-Giljá fyrir miðju og Jóhannes Torfason á Torfalæk t.h. við Erlend.
Fundur í Félagsheimilinu á Hvammstanga, hugsanlega framboðsfundur en Þekkja má f.v. Magnús Ólafsson Sveinstöðum og þingmennina Pál Pétursson (við hlið Magnúsar) og Pálma Jónsson (fermstan fyrir miðju).
Einhver veisla í Hótel Varmahlíð, hugsanlega vegna stækkun hótelsins og heimkomu hótelstýrunnar Ásbjargar Jóhannsdóttur eftir erfið veikindi, en þriggja daga veisla var haldin að því tilefni í ágúst 1993.
Beðið eftir fyrstu tölum á sviði Bifrastar í alþingiskostningunum 1991. Lengst t.v. eru Bogi Sigurbjörnsson frá Siglufirði og Ingibjörg Jóhannesdóttir frá Mið-Grund. Aðrir óþekktir.
Bændafundur í Víðihlíð í janúar 1998 sem þingmenn Sjálfstæðisflokksins í kjördæminu boðuðu til. F.v. Stefán A. Jónsson Kagaðarhóli, Ólafur B. Óskarsson Víðidalstungu, Hjálmar Jónsson alþingismaður, Vilhjálmur Egilsson alþingismaður og Gísli Karlsson frá Framleiðsluráði landbúnaðarins.