Að loknum kornskurði í Hólminum haustið 1996 þar sem nokkrir bændur í Skagafirði stunduðu kornrækt saman. F.v. Árni Halldórsson Útvík, Sigurður Sigfússon Vík, Gísli Björn Gíslason Vöglum, Eiríkur Loftsson héraðsráðunautur og Símon Traustason Ketu.
Frá þreskingu á korni í Hólminum haustið 1996 þar sem nokkrir bændur í Skagafirði stunduðu sameiginlega kornrækt. Gísli Björn Gíslason Vöglum er í þreskivélinni, Símon Traustason Ketu á pallinum og Sigurður Sigfússon Vík með pokann t.h.
Aðalfundur kjördæmisráðs Alþýðubandalagsins í Norðvesturkjördæmi. Óvíst um ár. F.v. Eyjólfur R. Eyjólfsson (í ræðustóli), Sigurður Sigfússon, óþekkt og Ragnar Arnalds.