Bréfið er vélritað á bréfsefni Varmahlíðarskóla. Það er undirritað af framkævmdanefnd og oddvitum Akrahrepps og Seyluhrepps. Bréfið er ein vélrituð bls og með liggur afrit af vinnusamningi, afrit af bréfi til Menntamálaráðuneytis og útdráttur úr fundargerðum bygginarnefndar. Öll eru þessi skjöl frá árinu 1979.
2 afrit af sama bréfi, annað handskrifað og afrit gert með kalkiappir, alls 4 bls. Hitt vélritað á 2 pappírsarkir í A4 stærð. Bréfið varðar leiðarval við vegagerð um Vallhólma.
Vélrituð pappírsörk í A4 broti, ályktun fundar sveitarstjórnarmanna í Miðgarði vegna Blönduvirkjunar, þar sem mótmælt er frumvarpi um Blönduvirkjun sem fyrirhugað er að leggja fyrir Alþingi.
Bréf í A4 stærð sem inniheldur ályktum um byggingu héraðsskóla. Bréfið er stílað á formenn skólanefndar í Skagafirði og stuðlað fulltrúum stjórnar Varmahlíðar.
Skýrslan er 14 fjölritaðar bls. í A4 stærð, auk forsíðu og baksíðu. Ársskýrsla ráðgjafar- og sálfræðiþjónustu á vegum fræðsluskrifstofanna á Norðurlandi.
Athugasemdir eru ritaðar á 2 pappírsarkir, aðra í folio broti og hina í folio stærð. Svör hafa verið límd á aftara blaðið á annarri örkinni. Varða athugasemdir við sveitarsjóðsreikning Akrahrepps fardagaárið 1915-1916 og svör við þeim. Ástand skjalanna er gott.
Athugasemdirnar eru handskrifaðar á pappírsörk í folio broti. Þær varða sveitarsjóðsreikning Akrahrepps fardagaárið 1919-1920. Ástand skjalsins er gott.
Bréfið er handskrifað á pappírsörk í A4 stærð. Það varðar kaup á Tyrfingsstöðum, sölu á Bakkaseli og Gili og niðurjöfnun gjalda. Ástand skjalsins er gott.
Bréfið er vélritað á pappírsörk í A4 stærð. Það varðar afrit af bréfi frá félaginu til héraðsráðs og héraðsnefndar, sem óskað er eftir að viðtakandi kynni sér.
Bréf í A4 stærð. Bréfið er frá bæjarstjóranum á Sauðárkróki og með því fylgir útskrift úr fundargerð þar sem forsvarsmenn skólamála ræddu hugsanlegt samstarf um Gagnfræðaskóla á Sauðárkróki.
Fundargerðin er vélrituð á 3 pappírsarkir í A4 stærð. Fundur um læknamiðstöð á Sauðárkróki. Auk nenfdarmanna sátu fundinn oddvitar í læknishéraðinu og sýslumaður.
Tvær fjölritaðar pappírsarkir í A4 stærð. Greinargerðin inniheldur ýmsar upplýsingar, sem fram komu á fundi hreppsnefnda Skagafjarðarsýslu 12. júní 1957, varðandi þörf fyrir félagsheimili fyrir íbúa sýslunnar. Á aftara blaði er teikning sem sýnir lögum héraðsins, fjarlægðir og mannfjölda. Aftan á aftara blaðið eru handskrifaðar tölur, einhvers konar útreikningar.
Hreppaskilabók fyrir Akrahrepp í Skagafjarðarsýslu 1889-1911. Ýmsar skrár, til að mynda: -Skýrsla um búnaðarástand -Skýrsla um framtal til lausafjártíundar á vor- og hausthreppaskilum -Skrá um skattgilda inntekt -Skrá um utanhreppsmenn er inntekt hafa frá Akrahreppi
Hreppaskilabók fyrir Akrahrepp í Skagafjarðarsýslu 1911-1930. Ýmsar skrár, til að mynda: -Skýrsla um búnaðarástand -Skýrsla um framtal til lausafjártíundar á vor- og hausthreppaskilum -Skrá um skattgilda inntekt -Skrá um utanhreppsmenn er inntekt hafa frá Akrahreppi