Stílabókin er í stærðinni 20,4 x 16,3 cm. Bókin inniheldur efni sem virðist vera uppskriftir úr kennslubókum, m.a. í sögu og málfræði. Kápan er nokkuð óhrein en annars er ástand bókarinnar gott.
Gjörðabók, innbundin, í stærðinni 22,6 x 18,2 cm. Í hana eru ritaðar fundargjörðir sóknarinnar. Aftast í bókinni er listi þar sem þrifum á kirkjunni er skipt á milli bæja í sókninni. Ástand bókarinnar er gott.
Bókin er 16 x 11 cm að stærð. Titill hennar er "Stutt matreiðslubók fyrir sveitaheimili" og er hún gefin út af Þóru Þ. Grönfeldt, prentuð í Gutenberg í Reykjavík 1906. Bókin er nokkuð slitin.
Innbundin fundargerðabók í stærðinni 19,4x24,5 cm. Bókin er 616 númeraðar síður, þar af 15 auðar síður. Bókin er innsigluð. Þessar fundirgerðir voru gefnar út á prenti.
Innbundin fundargerðabók í stærðinni 19x22,9 cm. Bókin er 188 númeraðar síður, þar af eru 22 auðar síður. Bókin er innsigluð. Þessar fundirgerðir voru gefnar út á prenti.
Innbundin fundargerðabók í stærðinni 21,1x32,7 cm. Bókin er 386 númeraðar síður og er fullskrifuð. Bókin er innsigluð. Þessar fundirgerðir voru gefnar út á prenti.
Innbundin fundargerðabók í stærðinni 24x35,5 cm. Með liggja ýmis minnisblöð sem voru laus aftast í bókinni. Þessar fundirgerðir voru gefnar út á prenti.
Innbundin fundargerðabók í stærðinni 22,5x29,6 cm. Bókin er 200 númeraðar síður, þar af eru 74 óskrifaðar. Þetta er síðasta fundargerðarbókin, en sýslunefnd var aflögð árið 1988. Þessar fundirgerðir voru gefnar út á prenti.
Fæðingarsálmar. Á titilsíðu stendur: "Fæðingarsálmar orktir af sál. Gunnlaugi Snorrasyni, fyrrum presti til Helgafells og Bjarnarhafnar safnaða. Kaupmannahöfn 1821. Prentað hjá bókbindara P.E.Rangel." Bókbandið orðið laust og kápu vantar. Brot á hornum blaðsíðna og bókin nokkuð blettótt og óhreinindi, einkum á ystu síðum.
Sálmaval við helgidagalestur í heimahúsum. Á titilsíðu stendur: "Sálmaval við helgidagalestra í heimahúsum. Samið hefur sjera Grímur sál. Grímsson prestur að Barði í Fljótum. Ásamt með nokkrum helgidagabænum, eptir ýsma merkispresta. Kostnaðarmaður J. Grímsson. Akureyri í prentsiðju norður- og austur-amtsins, af H.Helgasyni 1857." Bókin er innbundin í stærðinni 10,4x12,9 sm. Síðurnar orðnar nokkuð slitnar og óhreinar en bókin annars heilleg. Bókbandið orðið laust og kápu vantar. Brot á hornum blaðsíðna og bókin nokkuð blettótt og óhreinindi, einkum á ystu síðum.
Útgefið hefti í stærðinni 20,8x13,5. Horfurnar eftir Lárus H. Bjarnason. Alls 14 bls, auk titilblaðs. Kápu vantar og blöðin eru orðin slitin. Pólitískt rit.
Útgefið hefti í stærðinni 19,9 x 12,9 cm. Jónas Hallgrímsson. Minningar-ræða haldin í Reykjavík 11. dag Marz-mánaðar 1900 að tilhlutan Stúdentafélagsins. Eftir Jón Ólafsson. Alls 22 bls, auk titilblaðs. Kápu vantar og blöðin eru orðin slitin.
Hefti í stærðinni 25,5 x 13, 6 cm. Stephan G. Stephansson. Heftið er með kápu sem skreytt er gylltu skrauti og bundin á með satínborða. Útgáfuár og útgefanda ekki getið, en ef til vill gefið út í tilefni af afmæli Stephans eða ártíð. Inniheldur ljóð eftir skáldið.
Innbundin fundargerðabók í stærðinni 17x20,5 cm. Bókin er 376 númeraðar síður, þar af 6 auðar síður. Kápan er laus frá bókinni og bandið á innsiglinu hefur einnig losnað.
Bókin er innbundin og er 21x32,3 sm að stærð. Hún er 96 tölusettar blaðsíður og þar af eru 70 bls auðar. Í bókina eru ritaðar fundargerðir annars vegar frá 1929-1930 og hins vegar frá 1938-1939. Virðist sem fundir hafi fallið niður árin þar á milli, þó það sé ekki ljóst af texta bókarinnar. Með liggja minnismiði, uppköst að orðsendingum vegna annars vegar aðstoð við finnsku þjóðina vegna stríðástands og hins vegar um að takmarka ásetning búfjár. Auk þess fundarboð vegna fjársöfnunar fyrir finnsku þjóðina og er það í tveimur eintökum.
Bókin er innbundin í stærðinni 22x 27,4 sm. Hún er 72 tölusettar síður, þar af eru 59 auðar síður. Með liggur bréf frá öldrunarnefnd Skagafjarðar frá árinu 1987.