Myndin er teiknuð og lituð á pappírsörk í A4 stærð. Með liggur handskrifað bréf í A4 stærð, undirritað af Tryggva Magnússyni. Fram kemur að hann sé höfundur myndanna og einnig að hann hafi sent frá sér tvær aðrar tillögur. Myndin sýnir merki Skagafjarðar teiknað á fána. Ástand skjalanna er gott.
Uppdrættir af tveimur torfbæjum; Skottastöðum og Eiríksstöðum í Svartárdal. Hjá uppdrættinum af Eiríksstöðum kemur fram ártalið 1935 og líklega eru allir uppdrættirnir gerðir á því ári.