Annars vega handskrifað skjal í folio stærð sem varðar skoðun reikninga ýmissa sjóða og hins vegar handskrifað skjal í A4 stærð sem varðar saman málefni. Ástand skjalanna er gott.
Vélritað skjal í stærðinni A5. Hjalti Pálsson, þáverandi héraðsskjalavörður staðfestir móttöku á gestabókum nr 19-21 frá Byggðasafni Skagfirðinga. Bækurnar eru skráðar í B-19 til B-21 í þessu safni. Ástand skjalsins er gott.
Vélritað skjal í stærðinni A4. Þór Magnússon, þáverandi þjóðminjavörður, staðfestir móttöku á skrám safnsins sem og lýsingu á baðstofunni í Glaumbæ. Ástand skjalsins er gott.
Skjalið er prentað á pappírsörk í A5 broti, 4 síður. Um er að ræða texta við ýmis lög, sem gerðir hafa verið í tilefni af afmæli Júlíusar Þórðarsonar þann 11. mars 1959. Undir rita Einar og Ragnar. Ástand skjalsins er gott.
Ljóðið er handskrifað á pappírsörk í stærðinn 11,8x 18 cm. Það er ort í tilefni af 70 ára afmæli Odds Einarssonar (1870-1953) sem bjó í Þverárkoti á Kjalarnesi. Ástand skjalsins er gott.
Bréfið er vélritað á pappírsörk í folio stærð, afrit gert með kalkipappír. Það varðar lánsábyrgð vegna rafveitu hreppsins og planbyggingar á síldarverkunarstöðinni. Ástand skjalsins er gott.
Bréfið er vélritað á pappírsörk í folio stærð, afrit gert með kalkipappír. Það varðar lánsábyrgð vegna láns til Bjarna Jóhannssonar í Hólakoti. Ástand skjalsins er gott.
Afrit af bréfum Tónlistarskóla Skagafjarðarsýslu til ýmissa aðila. 18 handskrifuð bréf frá árunum 1977-1979 sem undirrituð eru af Heiðmari Jónssyni. 55 vélrituð bréf frá árunum 1979-1981 sem undirrituð eru af Knúti Ólafssyni og Ófeigi Gestssyni. Ófeigur virðist hafa verið formaður skólanefndar skólans. Ástand skjalanna er gott.
Símskeytið er handskrifað á pappírsörk í A5 stærð, afrit gert með kalkipappír. það varðar mótmæli á rýmkun heimildar til dragnótaveiða og er stílað á Jóns Sigurðsson alþingismann. Ástanda skjalsins er gott.
Afsalið er vélritað á pappírsörk í folio stærð. Það varðar afsal erfingja Guðlaugs Bergsson (föður Tryggva Guðlaugssonar) á húseigninni Grunargötu 11 (Pólstjörnunni) á Dalvík. Skjalið er nokkuð upplitað af óhreinindum og krumpað.
Skjalasafnið inniheldur bókhaldsgögn, bréf, gögn varðandi félagsheimili, fundagögn, gögn varðandi málaferli v. Eyjafjörð, skólamál skýrslur, útgefin blöð og gögn um sjúkrasamlag, elli- og örorkubætur.
25 pappírsskjöl sem varða aksturskostnað við byggingu bryggju í Haganesvík.Reikningarnir koma frá ýmsum aðilum og eru stílaðir á Hafnarsjóð Haganeshrepps. Einnig umslag sem merkt notað hefur verið til að sundurgreina kostnaðarliði við framkvæmdirnar.
Bréfið er handskrifað á pappírsörk í folio stærð. Varðar ákvörðun nefndarinnar um að skipa húsráðaendum að bera ösku, sorp og önnur óhreindingi í sjó út, að viðlögðum sektum. Skjalið er óhreint.
Álitið er vélritað á pappírsörk í folio broti. Með liggur samhljóða afrit, gert með kalkipappír. Varðar löggjöf um sveitarstjórnakosningar. Ástand skjalsins er gott.
Áltið er handskrifað á pappírsörk í A4 stærð. Það varðar fjallskilamál í Sauðárkrókshreppi. Með liggur minnismiði um fjallskilamál. Ástand skjalanna er gott.