Fjórðungsmót á Vindheimamelum 1979. Hrafn 802 frá Holtsmúla, brúnstjörnóttur (IS1968157460). ásamt afkvæmum. Knapar frá h. Sigurður Ellertsson hjá Hrafni, Steingrímur Óskarsson á Hrafni 802, Friðrik Stefánsson á Svölu 4633, Jóhann Friðgeirsson á Fáfni 897, Jón Baldvinsson á Skugga, Ingimar Pálsson á Glóblesa, Ármann Gunnarsson á Þresti, Þorvaldur Árnason á Draum 926, Friðrik Margeirsson á Freyju 4794.
Fjórðungsmót á Vindheimamelum 1979. Hrafn 802 frá Holtsmúla, Skag. brúnstjörnóttur. (IS1968157460). ásamt afkvæmum. Knapar og hross frá h. Friðrik Stefánsson á Svölu 4633, Jóhann Friðgeirsson á Fáfni 897. Jón Baldvinsson á Skugga, Ármann Gunnarsson á Þresti, Þorvaldur Árnason á Draum 926, Friðrik Margeirsson á Freyju 4794.
Héraðssýning á Vindheimamelum 1981 (skv. worldfeng er sýningin á Vindheimamelum 1982). Linda 5203 frá Ytra-Vallholti, Skag. brún. (IS1977257592). AE 8,13. Knapi, Hafsteinn Lúðvíksson, Y-Vallholti.
Frá setningu Landsmóts hestamanna á Vindheimamelum árið 2002. Fremst t.h. Anna Sif Ingimarsdóttir. Aftan við hana heiðursgestir mótsins. F.v. Ólafur Ragnar Grímsson (1943-) forseti Íslands, Anna Bretaprinsessa og Jón Albert Sigurbjörnsson formaður LH.
Hestamót Hestamannafélagsins Svaða á Hofgerðisvelli 1992. A-flokkur gæðinga. F.h. Trix frá Gröf og Þórir Níels Jónsson (1966-2011) frá Óslandi, Kóróna frá Sigríðarstöðum og Egill Þórarinsson (1960-), Flosi frá Brekkukoti og Sigurbjörn Þorleifsson (1944-2011) Langhúsum, Gríma frá Sigríðarstöðum og Þórarinn Arnarson (1973-), og Ljúfur frá Gerðum og Gísli S. Hallldórsson. Jón Guðmundsson (1931-) frá Ósland (t.h). og Símon Ingi Gestsson (1944-2018) frá Barði afhenda Þóri og Trix verðlaun en þeir sigruðu.
Heiðursgestir á Landsmóti hestamanna á Vindheimamelum sumarið 2002 ásamt Eysteini Leifssyni (annar f.h.).F.v. Dorrit Moussaieff, Ólafur Ragnar Grímsson (1943-) forseti, Anna Bretaprinsessa, Eysteinn, og Jón Albert Sigurbjörnsson formaður LH.