Kappreiðar á Eyrinni, þar sem nú er Verslunin Eyri og Vörumiðlun, en þar voru haldnar kappreiðar um og eftir 1950. Grár hestur hugsanlega í eigu Björns Skúlasonar. Í baksýn er maður með tvo til reiðar.
Hestamenn á Króknum í útreiðatúr. Framan frá: Guðmundur Sigurðsson (Mundi Gulla), Björn Björnsson, Þorvaldur Þorvaldsson (Búbbi), Stefán Helgason, Hafsteinn Lúðvíksson, Guðmundur Ó. Guðmundsson, Jón Baldvinsson og óþekktur (ca. um 1960).