Myndin er tekin í Winnipeg 1954. Aftan á hana er skrifað: "Þessi mynd er tekin yfir Assinnibo ánni, rétt fyrir ofan þar sem hún rennur í Rauðána. Það væri hægt að ætla að þetta væri langt inn í óbyggðum en þetta er í miðri borginni. Gatan sem liggur yfir brúna Oskorne str. er mjög stór og fjölfarin og útfrá henni liggur gatan sem Kobbi býr á."
Myndin er tekin í Winnipeg 1954. Aftan á hana er skrifað: "Ég stend þarna í dyrunum á Fort Garry virkinu. Þetta hlíð stendur til minja um þetta stóra virki og það eina sem eftir er af því. Það stóð þar sem miðborg Wpeg er nú."
Hestamannamót á Fluguskeiði, (ca. um 1955) en sá völlur var staðsettur á Gránumóum. Tilg. Björn Björnsson á fremri hestinum og Sigrún M. Jónsdóttir (Lóa) á þeim aftari (sennilega Glóa).
Brúntóna pappírskópía í stærðinni 5,5 x 8,5 sm. Á myndinni er Eiríkur Sigurgeirsson í Vatnshlíð. Myndin er límd á spjald merkt Daníel Davíðssyni ljósmyndara á Sauðárkróki.
Á myndinni eru tveir óþekktir drengir. Aftan á myndina er skrifað "Gósi frá og Bjössi." Gósi, líklega Loftsson, var frá Óslandi. Bjössi hét Friðbjörn Þórhallsson, bjó síðar á Hofsósi.
Guðrún Jónsdóttir f. 1886, d. 1962, húsfreyja á Grímsstöðum í Svartárdal. Missti mann sinn, Hjálmar Jóhannesson, árið 1923 og vann á ýmsum stöðum eftir það. Mynd 1927 eða 1928..
Ljósmyndin er svarthvít í stærðinni 6x9 sm. Myndin er frá sýningu Leikfélags Sauðárkróks á nýársnóttinni í Sæluviku 1942. Á henni eru líklega Péturs Hannesson í hlutverki álfakóngsins og Sigurður P. Jónsson í hlutverki Húnboga stallara.
Tilg. Myndir frá 42 til 50 (þ. e. 9 myndir). 200 ára afmæli Hóladómkirkju haldið í ágúst 1963. 56 prestar voru við athöfnina svo og biskup Íslands Sigurbjörn Einarsson og vígslubiskupinn Sigurður Stefánsson. Dómkirkjupresturinn Björn Björnsson flutti stólræðu, en ávarp flutti Bjarni Benediktsson kirkjumálaráðherra. Á myndinni er sr. Pétur Sigurgeirsson.
Myndin er tekin í Winnipeg 1954. Aftan á hana er skrifað: "Ég stend þarna upp við trjábút sem Kobbi sýndi okkur einu sinni þegar við vorum ða komu úr "stéttarbaráttunni". Hann er hafður þarna til sýnis. Það ar fellt 1929 og var það þá 687 ára. Það má glöggt sjá árshringina, og svo hafa þeir merk inn á (hvítu strikin). Það var þetta gamalt þegar Columbus fann Ameríku og önnur merkileg ártöl. Það er um 6 fet í þvermál, frá British Columbia."
Jarðaför Salóme Pálmadóttur í apríl 1957. Fremstu líkmenn eru synir hennar þorvaldur Þorvaldsson (Búbbi) fjær og Svavar Þorvaldsson (Daddi) nær. Þorvaldur Guðmundsson maður Salóme er fyrir miðju í fremstu röð næst kistunni.