Lúðrasveit Sauðárkróks sem starfaði um og fyrir 1930. F.v. Björn Jóhannesson, Svavar Guðmundsson, Friðvin G. Þorsteinsson, Valdimar Guðmundsson (Valdi Garðs), Ólafur Gíslason, Eyþór Stefánsson stjórnandi sveitarinnar, Sigfús Guðmundsson, Sigurður P. Jónsson, Hallgrímur Jónsson og Svavar Þorvaldsson (Daddi). Á myndina vantar Þorvald Þorvaldsson (Búbba).
Hlíðarendarétt. Þekkja má f.v. Björgvin Jónsson (ber framan við jeppann). Næst t.v. eru Margrét og Valdimar Guðmundsson (Garðs með pípu). Guðmund Valdimarsson (með kastskeyti) ber yfir Valdimar, þá Rögnvaldur Ólafsson og bak við hann Árni Rögnvaldsson (með hatt). Næst t.h. sé á bak Sigurbirni Hólm Björnssyni (1955-1960).