Óþekkt kona, situr á bekk og trjágróður í bakgrunni. Konan á myndinni er óþekkt en aftan á hana eru skrifaðar eftirfarandi upplýsingar: "Þessi mynd var tekin fyrir tveimur árum eða svo á heimsókn úti á landi."
Fólkið á myndinni er óþekkt en skírnarnöfn þeirra eru rituð aftan á myndina: Eggert, Elín, Jakob (eldri),Guðný, Ída, Jakob (yngri). Ída giftist í júní 1938 heitir Mrs. McConnell. Guðný og family. Gefandi: Una Árnadóttir frá Kálfsstöðum.
Sigurður Pétursson frá Sjávarborg. Aftan á myndina er skrifað: "Sigurður Pétursson sýslumaður frá Sjávarborg dó ungur." Myndin var gefin 09.07.2003 úr dánarbúi Kristínar Sölvadóttur Skr.
Fólkið á myndinni er óþekkt en hún er tekin á járnbrautarstöð vestan hafs. Aftan a myndina er skrifað: "Joseph, bróðir minn og ég. Við vorum að bíða eftir járnbrautarlest (það er rétta orðið er það ekki?)." Rithöndin er sú sama og á myndum nr 98, 101 og 102.
Heimilisfólkið á Syðri-Húsabakka 1927. F.v. Jóhanna Rannveig Pétursdóttir, vinnukona, óþekkt kona, Jón Kristinn Jónsson, bóndi, Kristín Sigurðardóttir, húsfreyja, börn hjóna Sigurður og Lilja fremst. Héraðsvötn að baki.
Sporöskjulaga ljósmynd á 8,8x13,7 cm bréfspjaldi (póstkorti). Á myndinni eru tvær ungar konur í peysufötum. T.h. er Valborg Hjálmarsdóttir á Tunguhálsi.
Fólkið á myndinni er óþekkt, en aftan á myndina eru skrifaðar eftirfarandi upplýsingar: "Victor, bróðir okkar, kona hans, ég, Lauranne, dóttir Victor og Nettie."
Tveir bátar með farþegum við bryggju. Fjöldi fólks stendur á bryggjunni, nokkrir með reiðhjól. Sennilega Akureyri frekar en Húsavík. Á húsinu fyrir miðri mynd stendur "Maskinverksted."
Fjórir drengir á Hólum í Hjaltadal. Hóladómkirkja í baksýn. Tilgáta: Jón Norðmann Jónsson lengst til vinstri og Sigurgeir Snæbjörnsson lengst til hægri.
Herbert Marteinson og John Marrteinson. Aftan á myndina er ritaður eftirarandi texti: "Foreldrar Helgi Marteinssonn og Ingibjörg Helgadóttir. Herbert á heima í Vancouver og er háttsettur í lögreglunni.
Á öðrum stendur: Foreldrar drengjanna hétu Birgitte Brandson og Helgi Marteinson og Helgi er skyldur Andrési. Stóri Björn afi þeirra?"
Aftan á myndina er skrifað: "Þetta er maður sem ég vinn mðe og konan hans. Ég var þar fyrir middagsmat einn sunnudag í haust eða seint í sumar. Myndin er merkt með sömu rithönd og myndir nr 98 og 101.
Aftan á myndina er skrifað: Antoniette og Eurico og ég. Þetta er sama sunnudaginn. Hjónin heita Carmine og Antoniette Mezzacappa og drengirnir eru Eurico. Mig þekkið þið býst ég við." Myndin er merkt með sömu rithönd og mynd nr 98.
Vegamenn 1928. Líklega við Grófargil. F.v. Markús og Vigfús Sigurjónssynir, Reykjarhóli, Steingrímur Friðriksson, Björn Gíslason, Jónas Gunnarsson, Hátúni.
Húsmæðraorlof á Bifröst í Borgarfirði, líklega það síðasta sem þar var haldið. Aftasta röð frá vinstri: Næsta aftasta röð frá vinstri: Fjórða er Þuríður Jónsdóttir frá Framnesi Þriðja röð frá vinstri: Kristín Sölvadóttir (framan og hægra megin við Þuríði) Þriðja kona til vinstri í þriðju röð framan frá: Sigríður Eiríksdóttir á Dýrfinnustöðum. Hægra megin við konu í rauðbrúnum kjól: Ingibjörg Jónsdóttir (Ebba) í Flugumýrarhvammi. Kona í gulri treyju: Ásta Hansen á Svaðastöðum og konan við hlið hennar Helga Sigtryggsdóttir á Víðivöllum.
Heimilisfólkið á Syðri-Húsabakka. F.v. Jóhanna Rannveig Pétursdóttir f. 1909, d. 1993, vinnukona, óþekkt eldri kona, Jón Kristinn Jónsson, bóndi, Kristín Sigurðardóttir, húsfreyja. Börn hjóna, Sigurður og Lilja fremst. Mynd 1927.
Ljósmynd í stærðinni 6 x 6,2 sm. Á myndinni eru ellefu ungmenni sem standa við húsvegg. Talið frá vinstri: Sólrún Steindórsdóttir, Guðrún Ingimarsdóttir frá Flugumýri, Rósa Sighvatsdóttir, Birna Guðjónsdóttir, Hulda Tómasdóttir, Anne Lise Bang, Sigfús Agnarsson frá Heiði, Steinunn Ingimarsdóttir frá Flugumýri, Ásbjörn Ólafur Sveinsson, Jósefína Hansen, Jóhannes Gunnarsson.
Til vinstri: Þórður Kristjánsson (1915-1991), kennari, ólst upp á Suðureyri við Súgindafjörð Til hægri: Hans Kristjánsson (1891-1952), frá Suðureyri. Stofnandi Sjóklæðagerðar Íslands h.f.
Myndin er svarthvít pappírskópía í stærðinni 5,5x5,5 sm. Á henni eru tvær konur sem standa á húströppum með barn milli sín og fyrir neðan tröppurnar eru tvö börn. Fólkið á myndinni er óþekkt.
Maðurinn á myndinni er óþekktur. Aftan á myndina er rituð þessi kveðja: "Jeg bið þig að fyrirgefa þessa ómerkilegu sendingu en óska þjer og öllum gleðilegra jóla og góðs og farsæls nýárs með þökk fyrir það liðna. Þinn einl. vinur Mundi."
Þessi hópmynd virðist tekin á ferðalagi. Trjágróður í bakgrunni. Á myndinni eru: Jórunn Hannesdóttir, Valgarð Blöndal, Jón Sigfússon, Sigríður Kristjánsdóttir, Sigríður Stefánsdóttir, Minna Bang, Jóhanna Blöndal, Rannveig Líndal, Hermína, Sigríður Sigtryggsdóttir og Pétur Hannesson.