Þessi hópmynd virðist tekin á ferðalagi. Trjágróður í bakgrunni. Á myndinni eru: Jórunn Hannesdóttir, Valgarð Blöndal, Jón Sigfússon, Sigríður Kristjánsdóttir, Sigríður Stefánsdóttir, Minna Bang, Jóhanna Blöndal, Rannveig Líndal, Hermína, Sigríður Sigtryggsdóttir og Pétur Hannesson.
Næstu 10 myndir þ. e. 18 til 28 eru frá opnun sjálfvirkrar símstöðfar í húsi Pósts og síma á Sauðárkróki í apríl 1968. Svæðisnúmer stöðfarinnar var 95. Forráðamenn Pósts og síma buðu fréttamönnum og gestum til fundar í Bifröst. Þar töluðu Jón Skúlason forstjóri símtæknideildar, Maríus Helgason umdæmisstjóri, Guðjón Ingimundarson, Friðrik Friðriksson læknir og Jóhann Salberg sýslumaður. Þorvarður Jónsson Yfirverkfræðingur lýsti svo stöðinni á staðnum, Fyrsta símtalið í hinni nýju stöð átti Jóhann Salberg sýslumaður við Gunnlaug Briem Póst- og símamálastjóra. Stöðfarstjóri hinnar nýju símstöðfar var Stefán Ólafur Stefánsson. Á myndinni talar Maríus Helgason umdæmisstjóri í Bifröst.
Sjá no 18. Á svölunum í Bifröst. Borðið næst f.v. Hulda Tómasdóttir, óþekkt (sér á bak), Dóra Þorsteinsdóttir, Elísabet Kemp, (Ingibjörg Jónasdóttir) (sennilega símastúlkur) og fjær Gestur Þorsteinsson.
Sjá no 18. Sjálfvirk símstöð á Sauðárkróki tekin í notkun vorið 1968. Stefán Pedersen ljósmyndari t.v. og Magnús Bjarnason kennari lengst t. h. óþekktur í miðið.
Sjá no 18. Jóhann Salberg sýslumaður talar fyrsta siímtalið í nýju sjálfvirku símstöðinni á Króknum vorið 1968 við Gunnlaug Briem Pósr- og símamálastjóra. Stefán Pedersen ljósmyndari t.v. og Hulda Sigurbjörnsdóttir fjær t. h.
Myndirnar frá 609 til 616 eru að öllum líkindum teknar á Vífilstöðum, en Kristján C dvaldi þar til lækninga á berklum frá 1920 til 1926. Óvíst er hvort þessar myndir eru teknar þá eða síðar. Fólkið á myndunum er óþekkt.
Fólkið á myndinni er óþekkt en aftan á hana eru skrifaðar þessar upplýsingar: "Við systurnar Stefanía, Ólöf, ég og maðurinn minn, Páll, daginn sem við giftum okkur, 1970." Bætt hefur verið við þeim upplýsingum að sé sem merkir myndina sé Ingibjörg og þær séu dótur Ingólfs Eiríkssonar.
Óþekkt kona, situr á bekk og trjágróður í bakgrunni. Konan á myndinni er óþekkt en aftan á hana eru skrifaðar eftirfarandi upplýsingar: "Þessi mynd var tekin fyrir tveimur árum eða svo á heimsókn úti á landi."
Fólkið á myndinni er óþekkt, 6 manns sem standa við bíl og trjágróður í bakgrunni. Aftan á myndina er skrifað: "Kunningjar frá W.peg heldurrðu ekki ég sé á vetur setjandi? Faðir stelpunnar sem stendur hjá mér er fæddur á Miðsitju Björnsson en svo man ekki ekki meira."
Tvær óþekktar konur með barn. Aftan á myndina er skrifað: "Þetta er mynd af konu Jósefs bróður míns, dreng þeirra og mér, tekin á flötinni framan við húsið okkar. Það sést á fram gluggana neðanverða. Þetta er tekið í sumar meðan ég var heima."
Karlmaðurinn í aftari röðinni er Sigurður J. Gíslason. Hitt fólkið er óþekkt. Aftan á myndina er skrifað: "Hún var nærri búin að dáleiða mig, þessi í brúnu kápunni. Karlamðurinn er úr Rvík og heitir Ólafur Guðmundsson. Við erum mikið saman. Stúlkurnar eru stystur. Myndin er tekin við ljós-bommu. Sigurður J. Gíslason."
Á myndinni er Steinunn Jónsdóttir frá Syðstu-Grund ásamt hluta af fjölskyldu sinni í Vesturheimi. Aftan á myndina er skrifað: "Til vinstri í efri röð. Jóna yngsta dóttir mín, Svan Ingi fóstursonur minn. Ég sjálf. Steinunna Jónsdóttir. Anna næst yngsta dóttir mín. Tvíbura dætur hennar Svanna Steinunn og ...." (meira sést ekki af textanum þar sem límmiði hefur verið límdur ofan á textann).
Fólkið á myndinni er óþekkt en skírnarnöfn þeirra eru rituð aftan á myndina: Eggert, Elín, Jakob (eldri),Guðný, Ída, Jakob (yngri). Ída giftist í júní 1938 heitir Mrs. McConnell. Guðný og family. Gefandi: Una Árnadóttir frá Kálfsstöðum.