Talsvert af síld var saltað á Sauðárkróki. A.m.k. 60 konur vorum um tíma skráðtar til vinnu við söltunina. Söltun Sauðkrækinga var þó aðeins brot af því sem var víða annars staðar fyrir Norðurlandi. Myndin gæti verið tekin árið 1942. Járnbrautarteinarnir sjást vel á myndinni. Við myndina stendur: Hulda Bubba, Bibba Þorvaldar, Ólafía Pétursdóttir, Ingibjörg Konráðsdóttir, Lína "Ingveldastaða", Jón Sig Ketu og Pála Sveinsdóttir
Ljósmynd í stærðinni 6 x 6,2 sm. Á myndinni eru ellefu ungmenni sem standa við húsvegg. Talið frá vinstri: Sólrún Steindórsdóttir, Guðrún Ingimarsdóttir frá Flugumýri, Rósa Sighvatsdóttir, Birna Guðjónsdóttir, Hulda Tómasdóttir, Anne Lise Bang, Sigfús Agnarsson frá Heiði, Steinunn Ingimarsdóttir frá Flugumýri, Ásbjörn Ólafur Sveinsson, Jósefína Hansen, Jóhannes Gunnarsson.
Sigrún M. Jónsdóttir (Lóa) eltist við hesta í haga sunnan við Bárustiginn. Sauðárkrókur og Tindastóll í baksýn. Stóra húsið t.h. stendur við Skagfirðingabraut 25. (ca. 1950-1955).