Sigrún M. Jónsdóttir (Lóa) eltist við hesta í haga sunnan við Bárustiginn. Sauðárkrókur og Tindastóll í baksýn. Stóra húsið t.h. stendur við Skagfirðingabraut 25. (ca. 1950-1955).
Sennilega Sörli hennar Lóu. Skagfirðingabraut 8 (með tveimur strompum) á Sauðárkróki í baksýn. Fyrir framan Sörla er stafli af steyptum rörum ( ca. um 1955).
Hús Búnaðarbankans við Faxatorg í forgrunni, kjörbúð KS (ný ráðhúsið á bak við. Vinstra megin suðurgatan og hægra megin Skagfirðingabraut. Sér í barnaskólann efst til vinstri á myndinni.
Ljósmyndin er svarthvít í stærðinni 6x9 sm. Myndin er frá sýningu Leikfélags Sauðárkróks á nýársnóttinni í Sæluviku 1942. Á henni er líklega Sigurður P. Jónsson í hlutverki Húnboga stallara.
Ljósmynd í stærðinni 9 x 9 sm. Á myndinni sjást m.a. húsin við Aðalgötu 16, 14, 12 og 10 við Aðalgötu og Sauðárkrókskirkja. Myndin er tekin af svölum hússins við Aðalgötu 21.
Ljósmynd í stærðinni 10,2 x 6,4 sm. Myndin er tekin af Nöfunum ofan við Sauðárkrók og sést m.a. yfir Lindargötu, Skógargötu og Aðalgötu, Sauðárkrókskirkju og Suðurgötu.
Horft frá Suðurgötu til norðausturs. Sæmunargatan í bakgrunni, barnaskólinn við Freyjugötu fyrir miðri mynd, kjörbúð KS (nú ráðhúsið) og hús við Suðurgötuna fremst á myndinni.
Jarðbor Jóns Nikódemusonar, var notaður til borunar eftir heitu vatni við Áshildarholtsvatn (ca. 1950-1960). Mennirnir á myndinni eru Gunnar Helgason t.v. og Jón Nikódemusson.
Talsvert af síld var saltað á Sauðárkróki. A.m.k. 60 konur vorum um tíma skráðtar til vinnu við söltunina. Söltun Sauðkrækinga var þó aðeins brot af því sem var víða annars staðar fyrir Norðurlandi. Myndin gæti verið tekin árið 1942. Járnbrautarteinarnir sjást vel á myndinni. Við myndina stendur: Hulda Bubba, Bibba Þorvaldar, Ólafía Pétursdóttir, Ingibjörg Konráðsdóttir, Lína "Ingveldastaða", Jón Sig Ketu og Pála Sveinsdóttir