Gunnlagur Sölvason og Guðríður kona hans. Börnin eru Björn, Stefán og Lilja. Myndin er tekin um 1901 eða 1902. Myndin er gefin 09.07.2003 úr dánarbúi Kristínar Sölvadóttur á Sauðárkróki.
Passamynd. Stúlkan á myndinni er Karen, 10 ára gömul. Hún er afkomandi Reykjavallahjóna Guðríðar og Guðmundar Skúlasonar. Dórri Matthíasar Þorfinnssonar.
Konan í upphlutnum heitir Helga Jónsdóttir og sú í kjólnum heitir Hildur. Aftan á myndina er skrifað: "Reykjavík 21/3 1912. Kæra Guðbjörg mín. Jeg hef að öllum líkindum ekki breyst svo mikið að þú þekkir mig ekki, en samt þori jeg ekki annað en segja þjér að jeg er sú sem er í upphlutnum, en Hildur sem er á kjólnum. Skilaður kærri kveðju til alls heimilisfólksins, svo er jeg. Þín einlæg frænka Helga Jónsdóttir."
Óþekkt kona fyrir framan hús. Myndin er tekin í Vesturheimi. Aftan á myndina er ritað: "Þetta eru tröppurnar á húsinu sem ég bý í. Stóri glugginn var á setustofunni minni. Eins og ég sagði í bréfinu, þá hefi ég flutt upp á sjötta gólf., svo þetta er ekki glugginn minn lengur."
Aftan á myndina er skrifað: "Þetta er maður sem ég vinn mðe og konan hans. Ég var þar fyrir middagsmat einn sunnudag í haust eða seint í sumar. Myndin er merkt með sömu rithönd og myndir nr 98 og 101.
Herbert Marteinson og John Marrteinson. Aftan á myndina er ritaður eftirarandi texti: "Foreldrar Helgi Marteinssonn og Ingibjörg Helgadóttir. Herbert á heima í Vancouver og er háttsettur í lögreglunni.
Á öðrum stendur: Foreldrar drengjanna hétu Birgitte Brandson og Helgi Marteinson og Helgi er skyldur Andrési. Stóri Björn afi þeirra?"
Fólkið á myndinni er óþekkt en hún er tekin á járnbrautarstöð vestan hafs. Aftan a myndina er skrifað: "Joseph, bróðir minn og ég. Við vorum að bíða eftir járnbrautarlest (það er rétta orðið er það ekki?)." Rithöndin er sú sama og á myndum nr 98, 101 og 102.
Sigrún M. Jónsdóttir (Lóa) eltist við hesta í haga sunnan við Bárustiginn. Sauðárkrókur og Tindastóll í baksýn. Stóra húsið t.h. stendur við Skagfirðingabraut 25. (ca. 1950-1955).
Kristján C. Magnússon við skrifborð sitt hjá Kaupfélagi Skagfirðinga, en hann vann á skrifstofu félagsins frá árinu 1934 til 1971 lengst af við verðlagningu.
Anna Erlendsdóttir og Stefanía Erlendsdóttir ásamt eiginmönnum og börnum. Þær voru dætur Erlendar verslunarstjóra í Grafarósi og Hofsósi. Anna var gift Jóni A. Ólafssyni verslunarmanni á Patreksfirði. Stefanía var gift Aðalsteini P. Ólafssyni, verslunarmanni á Patreksfirði.
Til vinstri: Þórður Kristjánsson (1915-1991), kennari, ólst upp á Suðureyri við Súgindafjörð Til hægri: Hans Kristjánsson (1891-1952), frá Suðureyri. Stofnandi Sjóklæðagerðar Íslands h.f.