Myndin er tekin í Winnipeg 1954. Aftan á hana er skrifað: "Þessi mynd er tekin yfir Assinnibo ánni, rétt fyrir ofan þar sem hún rennur í Rauðána. Það væri hægt að ætla að þetta væri langt inn í óbyggðum en þetta er í miðri borginni. Gatan sem liggur yfir brúna Oskorne str. er mjög stór og fjölfarin og útfrá henni liggur gatan sem Kobbi býr á."
Myndin er tekin í McCreary. Aftan á myndinni stendur: "Myndin er tekin 2-3 mílum fyrir sunnan Mc Creary, þar sem við vorum að vinna og er af stéttinni. Svona er útsýnið hvar í Manitoba."
Myndin er tekin í Brandon 19. september 1954 Aftan á myndinni stendur: "Þarna sést neðsti hlutinn af bænum, en hann stendur ofan í hálfgerðum dal, sem áin hefur sjálfsagt grafið. Bakkar sléttunnar sjást í fjarska."