Skagfirðingar, hugsanlega eldri borgarar á ferð í Lónkoti við minnisvarða um Sölva Helgason. F.v. Haraldur Hermannsson (sér á bak), Anna Pála Guðmundsdóttir, Sigurlaug Guðmundsdóttir, Kári Steinsson (fjær), Hrólfur Jóhannesson, Magnús Jónasson, Birna Guðmundsdóttir, Ágústa Jónasdóttir t. v. við súluna. Aðrir óþekktir.
Myndin er tekin í Winnipeg í júní 1955. Aftan á hana er skrifað: "Stytta Jóns Sig. og stúlkan sem lagði blómsveiginn. Hún heitir Margrét og maður hennar, Þorsteinn er prentari hjá öðru dagblaðinu hér."
Myndin er tekin í Manitoba 1954. Aftan á hana er skrifað: "Þinghúsið í Manitoba. Þetta er mjög fallegt hús og fyrir framan tröppurnar sést minnismerki af Viktoríu drottningu. Í garðinum er stittan af Jóni Sig."
Frá afhjúpun minnisvarða Stephans G. Stephanssen á Arnarstapa árið 1953. Þriðja f.v. er líklega Rósa Benediktsson dóttir skáldsins, en hún afhjúpaðai minnisvarðann, aðrir á myndinni ónafngreindir.
Afhjúpaður minnisvarði um Sigurð Jónasson skógarvörð í rjóðri við bæjartóftir Laugarbrekku í Reykjarhólnum í september 1996. F.v. Sigurður Örn Hilmarsson og Sigurður Sigurðsson barnabörn Sigurðar, en þeir afhjúpuðu minnisvarðann þá sr. Gunnar Gíslason, Magnús Sigurjónsson framkvæmdastjóri héraðsnefndar, óþekktur og Þórarinn Sólmundarson.
Myndin er tekin í Winnipeg í júní 1955. Aftan á hana er skrifað: "Styttan af Jóni Sig. í þinghúsgarðinum og blómsveigur sem lagður að henni 17. júní. Krakkarnir eru íslenskir."
Afhjúpaður minnisvarði um Sigurð Jónasson varðstjóra - í Varmahlíð. Talið f.v.: Sr. Gunnar Gíslason prestur í Glaumbæ - Magnús Sigurjónsson Sauðárkróki og óþekktur.
Myndin er tekin í Manitoba 1954. Aftan á hana er skrifað: "Þessi mynd er tekin inní andyri Þinghússins. Þessi vísundur er í fullri stærð og annar stendur hinu megin við stigann. Þeir eru baðir úr bronsi, en annars er húsið allt úr steini."
Myndin er tekin í Winnipeg í júní 1955 Aftan á hana er skrifað: "Bragi Melax og ég fyrir framan styttuna af Jón Sig. í þinghúsgarðinum, hún er eins og sú á Austurvelli.
Minnisvarði um Sigurð Jónasson skógarvörð afhjúpaður í skógræktarstöðinni Laugarbrekku í Varmahlíð haustið 1996. F.v. Sigurður Örn Hilmarsson og Sigurður Sigurðsson barnabörn Sigurðar, þá sr. Gunnar Gíslason, óþekktur, Magnús Sigurjónsson framkvæmdastjóri héraðsnefndar og Þórarinn Sólmundarson.
F.v. Jón Þorsteinsson (faðir Lóu) - Hólmfríður Rögnvaldsdóttir (Haddý) - Sigrún M Jónsdóttir (Lóa) - óþekkt og Flóvent Albertsson. Myndin tekin við minnismerki Stepans G. Spephensen á Arnarstapa. (ca. 1950-1955).