Hópur fólks á ferðalagi. Á bakvið sést yfirbyggður bíll. Aftan á myndina er skrifað: "Á leið til Þingvalla 1947. Lengst til vinstri Björn Sigtryggsson. Fremst Jóhanna Frostastöðum. Lengst til hægri Árni bílstjóri Víðimel."
Sigrún M. Jónsdóttir (Lóa) með kindur sínar á túni syðst á Sauðárhæðum, þar sem nú er Túnahverfið. Lóa átti þetta tún og húsið á því og var með kindur sínar á því haust og vor, en í fjárhúsi við húsið heima (Suðurgötu 10) yfir veturinn.
Myndin er tekin í herbergi á óþekktum stað. Fyrir miðju er tafla sem á eru skrifaðar nótur. Beggja vegna við hanga myndir á veggjum. Vinstra megin er einhvers konar kommóða eða skrifpúlt með upprúlluðum pappír. Þar við hliðina eru tveir stólar.
Stúlkurnar á myndinni eru Allison Ral 7 ára og Amber Jill 4 ára. Aftan á myndinni, neðan við nöfn og aldur stúlknanna stendur: "Gíslason Arborg Mane Canada. Dec 1980."
Svartvhít ljósmynd. Negatíva skönnuð í tif. Á myndinni eru, f.v.: Þórunn Snorradóttir, Guðrún Hulda Pálmadóttir og Kristín S. Björnsdóttir. Myndin er tekin í Grunnskólanum á Hofsósi.
Fjölskyldan á Skefilsstöðum á Skaga 1927 eða 1928. F.v. Sigríður f. 1895, Ólína Ingibjörg f. 1903, Björn Ólafsson f. 1862, Gunnar f. 1905, Guðrún Ingibjörg Björnsdóttir f. 1870, Björn Haraldur f. 1897.
Börnin á myndinni eru Roseanna, Roy og Stefán. Aftan á myndina er skrifað: Roseanna, Roy og Stefán, litlu strákarnir hennar Hildu (tekið í Fargo í ágúst 1952)."
Litmynd í stærðinni 16,2x25 sm. Á myndinni er kór eldri borgara í Skagafirði ásamt undirleikara og meðlimum úr öðrum kór. Myndin er tekin í Selfosskirkju.
Pappírskópía límd á pappaspjald. Myndir er orðin nokkuð skemmd af óhreinindum og spjaldið rispað og skemmt og búið að brjóta upp á það. Á myndinni eru, talið frá vinstri:
Ólöf Einarsdóttir, húsfreyja,
Bessi Einarsson (bróðir Ólafar?),
Beinteinn Bjarnason, Siglufirði
Guðmundur Bjarnason, Bakka, Siglufirði,
Þormóður Eyjólfsson, Siglufirði
Jórunn Sigurðardóttir frá Hraunum (síðari eiginkona Lúðvíks Guðmundssonar útgerðarmanns),
Einar B. Guðmundsson
Dagbjört Magnúsdóttir, kona hans
Bjarni Þorsteinsson, prestur Siglufirði,
Sigríður Blöndal Lárusdóttir, kona hans,
Sigríður Jónsdóttir, kona Helga Hafliðasonar,
Matthías Hallgrímsson, Siglufirði,
Guðmundur Davíðsson, bóndi og hreppstjóri, Hraunum,
Halldór Jónasson, kaupmaður Siglufirði,
Helgi Hafliðason, kaupmaður og útgerðarmaður Siglufirði,