74 negatívur sem ekki voru skannaðar. 59 myndir af sauðfé, 2 landslagsmyndir, 2 myndir af byggingum (líklega sjúkrahúsið á Sauðárkróki) og 11 hestamyndir.
Selnes á Skaga. Íbúðarhúsið var byggt árið 1958. Tóftarbrotunum á bakkanum var ýtt fram af og þar með grafinn niður sporvagn sem notaður var við fisklöndun. Ofarlega til vinstri eru tóftir af fjárhúsum.
Ljósmynd af þremur börnum ,líklega systkinum. Myndin er svarthvít pappírskópía í stærðinni 13,6x8,7 cm, límd á pappaspjald. Ástand myndarinnar er gott.
Byrjað að grafa fyrir sundlauginni á Hólum en hún var vígð vorið 1982. F.v. má þekkja Kristján Skarphéðinsson, Jón Bjarnason skólastjóra Bændaskólans og Gísla Pálsson frá Hofi (með skófluna). Frá hægri má þekkja Jóhann Salberg sýslumann og Ingvar Gýjar Jónsson.