Bréfið er handskrifað á pappírsörk í A4 stærð auk fjórðungs úr annarri pappírsörk. Efi bréfsins er sauðfjárbúskapur þeirra Kolbeins og Péturs og auk þess svar við fyrirspurn um ættir Péturs. Blöðin eru upplituð og óhrein.
Bréfið er handskrifað á pappírsörk í A5 stærð. Það varðar baðlyf til fjárkláðaböðunar. Með liggja 3 kvittanir vegna afhendingar baðlyfja. Smá bútur hefur rifnað af bréfinu, annars er ástand skjalanna gott.
Bréfið er ritað á pappírsörk í A5 broti, ein skrifuð síða. Bréfritari lýsir því yfir að hann geti ekki gegnt starfi sauðfjáreftirlitsmanns á komandi ári.
Bréfið er handskrifað á pappírsörk í A4 stærð. Það varðar kláðaskoðun vegna fjárkláða í hreppnum. Á bréfinu eru nokkrar ryðskemmdir, annars er ástand þess gott.
Bréfið er handskrifað á 2 pappírsarkir í folio stærð. Það varðar fjárskoðanir í 11 hreppum í Skagafirði. Með liggur skýrsla um fjárskoðunina, 1 pappírsörk í folio stærð.
Bréfið er ritað á pappírsörk í folio broti, alls tvær skrifaðar síður. Það varðar vöruvöndum og mat á ullarvörum og er undirritað af nokkrum kaupmönnum.
Bréfið er ritað á pappírsörk í A5 broti, ein skrifuð síða. Bréfritari lýsir því yfir að hann geti ekki gegnt starfi sauðfjáreftirlitsmanns á komandi ári.
Bréfið er handskrifað á pappírsörk í folio stærð. Það varðar tillögur um framkvæmd kláðaskoðunar. Ryðskemmd eftir bréfaklemmu er á skjalinu, annars er ástand þess gott.
Innbundin bók í stærð 21,5 x 30 cm. Í hana eru færðar upplýsingar um sauðfé félagsmanna í fjárræktarfélagi Hjaltadals. Færslurnar eru frá tímabilinu 1950-1966. Ástand bókarinnar er gott.
Innbundin bók í stærð 21,5 x 30 cm. Í hana eru færðar upplýsingar um sauðfé félagsmanna í fjárræktarfélagi Hólahrepps. Færslurnar eru frá tímabilinu 1950-1966. Ástand bókarinnar er gott.
Skýrslur um sauðfé og þá sem koma að þeirri starfsemi en gögnin eru persónugreinanleg og sett hér eins og þau komu í ártalaröð, en hreinsuð af heftum og plastblöðum.