Myndin er tekin í Winnipeg 29. agúst 1954. Aftan á hana er skrifað: "Ég stend þarna fyrir framan eina stærstu járnvöruverslun borgarinnar, heldur súr á svipinn. Á rúðunum má sjá rendur, um 10 cm frá kantinum, hringinn í kring. Þetta er til varnar þjófum, Þessi rönd er eins og úr brönsi og er rafstraumur á henni, og ef kemur sprunga í hana hringir þjófabjalla. þetta er mjög nýtt og er á mörgum byggingum í Wpeg. Ekki vorum við nú að hugsa nánar um það."
Myndin er tekin í Winnipeg 29. agúst 1954. Aftan á hana er skrifað: "Ráðhús Winnipeg borgar. Þar er mjög fögur og skrautleg bygging, með fallegum garði með minnismerkjum fyrir framan."
Myndin er tekin í Winnipeg 29. agúst 1954. Aftan á hana er skrifað: "Við skruppum til Wpeg um þessa helgi og hittum Stebba þar, þá tók Kári þessa mynd af okkur."
Myndin er tekin í Winnipeg í júní 1955 Aftan á hana er skrifað: "Hudson Bay verslunin séð á bakhlína og bílastæðið á tveimur hæðum, sem nú er verið að byggja þriðju hæðina á."
Ljósmynd í stærðinni 10,2 x 6,4 sm. Myndin er tekin af Nöfunum ofan við Sauðárkrók og sést m.a. yfir Lindargötu, Skógargötu og Aðalgötu, Sauðárkrókskirkju og Suðurgötu.
Bifreiðin SK-1. Óþekktur hópur manna. Annar f.v. gæti verið Þorvaldur Þorvaldsson (Búbbi). Húsið á bak við hópinn er KG húsið sem stóð neðst í Kristjánsklaufinni að sunnan.
Horft frá Suðurgötu til norðausturs. Sæmunargatan í bakgrunni, barnaskólinn við Freyjugötu fyrir miðri mynd, kjörbúð KS (nú ráðhúsið) og hús við Suðurgötuna fremst á myndinni.
Handskrifuð pappírsörk í folio stærð, úr bréfabók sýslunefndar. Það varðar bréf til Staðarhrepps, Lýtingsstaðahrepps og Akrahrepps og varða öll bréfið viðskipti með jarðir eða húseignir.
Svartahúsið við Aðalgötu 16b. óþekktar konur en við myndina stendur ábúendur í Svartahúsinu eru Guðmundur Sigvaldsson (verkamaður í norðurenda) og Valdimar (jónsi) sjómaður í suðurenda.