Forprentaðar yfirlitsskýrslur í A3 stærð með handskrifuðum og vélrituðum upplýsingum um sauðfjárrækt, fyrir tímabilið 1955-1965. Allar skýrslurnar eru vel varðveittar og læsilegar.
Eitt forprentað rúðustrikað blað í A3 stærð. Á blaðið er skrifað; "Meðalþungi reiknaður meðaldilka á fæti. Kjötþungi" og eru þessar upplýsingar gerðar fyrir tímabilið 1954-1959 fyrir Sauðfjárrætkarfélag Hólahrepps. Á blaðið er einnig teiknaðar og litaðar súlur með tölulegum upplýsingum eins og fjölda félagsmanna sem skila skýrslunum, þungi áa í október, meðalþyngdarauki yfir veturinn og fleiri atriði. Blaðið er vel varðveitt og læsilegt
Tvö línustrikuð pappírsgögn. Annað skjalið sem er í A5 stærð er n.k. stofnskjal þar sem um 50 manns rita nöfn sín til stofnunar slysavarndadeildar í Hólahreppi. Það er vel læsilegt en er orðið mjög snjáð og skítugt og hefur rifnað. Hitt skjalið er í A3 stærð þar sem er félagaskrá fyrir tímabilið 1952-3 með 41 nafni.
Harðspjaldabók með línustrikuðum blaðsíðum. Í bókina eru færðir reikningar slysavarnadeildarinnar frá 1944-1961, að öðru leyti eru blaðsíður bókarinnar auðar. Bókin er mjög vel með farin, hún er vel læsileg. Á kjöl bókarinnar er límborði.
Forprentaðar hrútaskýrslur í A3 stærð með handskrifuðum upplýsingum um sauðfjárrækt, fyrir tímabilið 1952-1974. Allar skýrslurnar eru vel varðveittar og læsilegar.
Skýrslur um heyskap á Skúfsstöðum frá 1899-1963. Þar kemur fram hversu margir unnu við sláttinn, hvaða dagar var unnið við heyskap og hvernig heyaðist.
Innbundin og handskrifuð bók. Bókin hefur verið lítið notuð og þess vegna varðveist ágætlega, hún er vel læsileg. Í bókina eru skráðar fundagerðir og reikningar félagsins sem spannar tímabilið 1929 - 1967.
Innbundin og handskrifuð bók, blaðsíðurnar eru línustrikaðar. Bókin er mjög vel með farin og greinilega lítið notuð, aðeins eru færðar í hana lög félagsins og alls sex fundagerðir að öðru leyti eru blaðsíðurnar auðar. Límborði er á kjöl bókarinnar.
Í Laufskálarétt haustið 1955. Maðurinn fyrir miðju er Kolbeinn Kristinsson frá Skriðulandi og maðurinn til hægri Jón Björnsson frá Bakka í Viðvíkursveit. Aðrir óþekktir.