Rímnabókin Varabálkur. Á titilsíðu stendur: "Varabálkur, kveðinn af Sigurði hreppstj. Guðmundssyni. Kostnaðarmenn: Björn Jónsson, Stefán Stefánsson. Akureyri, Pretnaður í prentsmiðju Norður- og austur amtsins. B.M.Stephánsson. 1872." Bókin er innbundin í stærðinni 10,5x16,2 cm. Ástand hennar er gott en síðurnar nokkuð upplitaðar.
Bókin er innbundin stílabók í stærðinni 22,5 x 18 sm. Í hana eru færð útlán félagsins á árunum 1939-1953. Búið er að klippa nokkrar blaðsíður fremst úr bókinni.
Tillögurnar eru handskrifaðar á pappírsörk í A4 broti. Þær varða bókasafn sýslunnar. Með liggur reikningur safnsins sem er einnig í A4 broti. Ástand skjalanna er gott.
Tillagan er handskrifuð á pappírsörk í folio stærð. Hún varðar beiðni um bókagjöf úr sýslubókasafni, vegna fyrirhugaðrar stofnunar lestrarfélags. Ástand skjalsins er gott.
Tillagan er handskrifuð á pappírsörk í A4 stærð. Hún varðar bókakaup í kjölfar tilboðs frá Jóhanni Erni Jónssyni. Með liggur hluti af bókaskrá frá Jóhanni, sem er handskrifuð á pappírsörk í A4 stærð. Ástand skjalsins er gott.
Bókin er 58 bls í A4 broti, hún er kjallímd og með litprentaðri kápu. Á titilsíðu stendur: "The flying wolf. Written by S.G. Skulason. Art by Irvin "shorty" Shope & William Standing." Bókin er árituð, merkt Jóni og undirritunin er "Mom."
Stílabókin er í stærðinni 21,3 x 15,8 cm. Bókin inniheldur frásögn um sjóhrakninga Jóhanns Jónssonar til Grímseyjar 1884, minningar Jóns Bergssonar á Þrasastöðum og sögur um Þorstein Daníelsson á Skipalóni. Með liggja þrjú minnisblöð, eitt þeirra með eftirmælum um Svein Sveinsson. Einnig minnisblað Hjalta Pálssonar um innihald bókarinnar. Ástand bókarinnar er gott.
Bókin er innbundin í stærðinni 13,5x20,5 sm. Á titilsíðu stendur: "Spedjerbogen. Patrouilleövelser for drenge. Generallöjjtnant sir R.S.S. Baden-Powells scouting for boys ved C.Lembcke. Andet oplag. Gyldendalske Boghandel Nordisk forlag. MDCCCCXI." Kápa farin að losna frá og kjölur slitin, annars í ágætu ásigkomulagi.
Bókin er innbundin í stærðinni 9,5x12,9 sm. Á titilsíðu stendur: "Bent Rasmussen: Spedjer kogebog. K.F.U.M. spedjernes instruktionshaandböger. III. De unge forlag. I Hovedkommission: O. Lohse, Köbenhavn. MCMXXIV." Bókin er í góðu ásigkomulagi.
Sálmaval við helgidagalestur í heimahúsum. Á titilsíðu stendur: "Sálmaval við helgidagalestra í heimahúsum. Samið hefur sjera Grímur sál. Grímsson prestur að Barði í Fljótum. Ásamt með nokkrum helgidagabænum, eptir ýsma merkispresta. Kostnaðarmaður J. Grímsson. Akureyri í prentsiðju norður- og austur-amtsins, af H.Helgasyni 1857." Bókin er innbundin í stærðinni 10,4x12,9 sm. Síðurnar orðnar nokkuð slitnar og óhreinar en bókin annars heilleg. Bókbandið orðið laust og kápu vantar. Brot á hornum blaðsíðna og bókin nokkuð blettótt og óhreinindi, einkum á ystu síðum.
Bók í stærðinni 10,7x 7,2 cm. Kápu og titilblað vantar á bókina og því óljóst um hvaða bók ræðir. ÁYfirskrift fremstu blaðsíðunnar er Dagverðareyrarmenn. Bókin er 112 bls.
Fjölrituð auglýsing með afrifumiðum sem ætlaðir eru til áskriftarpöntunar. Með fylgir bréf ætlað til að skrá pantanir og á það eru handskrifuð þrjú nöfn.
Bæklingur í stærðinni 21,8 x 14,9 cm. Íslenzk fornrit. Listi yfir útgefnar bækur í þessum bókaflokki. Alls 8 bls, auk kápu. Ríkisprentsmiðjan Gutenberg 1933.
Nemendur Íþróttakennaraskólans á Laugarvatni 1937: Frá vinstri: Jón Hjartar - Guðjón Ingimundarson, Páll Sigurðsson frá Lundi í Stíflu og Sigrún Jónsdóttir.
Nemendur Íþróttakennaraskólans á Laugarvatni 1937: Frá vinstri: Jón Hjartar - Guðjón Ingimundarson, Páll Sigurðsson frá Lundi í Stíflu og Sigrún Jónsdóttir.
Fimmtíu Passíusálmar. Hallgrímur Pétursson. Útgefandi Reykjavík : Prentað í Prentsmiðju Íslands og á kostnað hennar. Bókin er 208 bls. og 13 x 9,6 sm að stærð.
Fæðingarsálmar. Á titilsíðu stendur: "Fæðingarsálmar orktir af sál. Gunnlaugi Snorrasyni, fyrrum presti til Helgafells og Bjarnarhafnar safnaða. Kaupmannahöfn 1821. Prentað hjá bókbindara P.E.Rangel." Bókbandið orðið laust og kápu vantar. Brot á hornum blaðsíðna og bókin nokkuð blettótt og óhreinindi, einkum á ystu síðum.
Bréfið er fjölritað á pappírsörk í A4 stærð. Um er að ræða dreifibréf sem varðar ríkisframlag til bókasafna. Með liggur auglýsing um lágmarksframlög sveitarfélaga til almenningsbókasafna. Ástand skjalsins er gott.
Bréfið er handskrifað á pappírsörk í A4 stærð. Með liggja tvær pappírsarkir í A4 stærð, listi yfir bækur. Það varðar fornbækur sem bókasafni sýslunnar eru boðnar til sölu. Ástand skjalanna er gott.
Béfið er handskrifað á pappírsörk í folio stærð. Það varðar ósk Ísleifs um kauphækkun. Með liggur listi yfir ónýtar bækur safnsins. Ástand skjalanna er gott.
Bréfið er handskrifað á pappírsörk í folio broti. Það varðar beiðni um bókagjöf úr sýslubókasafni, vegna fyrirhugaðrar stofnunar lestrarfélags. Ástand skjalsins er gott.
Bréfið er handskrifað á línustrikaða pappírsörk og undirritað af Jóhannesi Erni Jónssyni í Árnesi. Meðfylgjandi er umslag stílað á Valdemar Guðmundsson, þá búsettan í Fremri-Kotum.
Bréfið er handskrifað á tvær pappírsarkir í A5 stærð. Það varðar ítrekun á greiðslu fyrir bókakaup. Letrið hefur dofnað og er orðið mjög erfitt að lesa. Skemmdir eru á blöðunum eftir ryðgaða bréfaklemmu.
Balslevs biflíusögur handa unglingum / er íslenzkað hefir Ólafur Pálsson ; með viðbæti eptir Helga Einarsson. Balslev, Carl Frederik, 1805-1895. Ólafur Pálsson. Útgefandi Reykjavík : Ísafoldarprentsmiðja, 1896. Bókin er 160 bls. í stærðinni 13,8 x 9,5 sm.
Bréf til kynningar á útgefnu efni frá Félagsprentsmiðjunni. Meðfylgjandi bréfinu er spjald í bókamerkisformi, með forskrift af íslensku stafrófi, ætlaðri börnum.
Baksíðan hefur rifnað af bók sem gefin er út af Fjallkonu-útgáfunni, en ekki er ljóst hvaða bók. Á síðunni eru listaðar upp bækur sem komu út hjá útgáfunni árið 1914.