Fólkið á myndinni er óþekkt. Myndin er tekin að vetri og í bakgrunni er hús. Aftan á myndina er skrifað: "Mama er í miðlunni. Ég (lára) er við hliðina á mama. Bróðir Victor er á aðra hlið á mama. Þessir attan, Florence sister er næst mér. Olga siter er næst Victor. Litla drengurinn er sonur Victor´s. (Skal senda betri mynd seinna)."
Laufey og Svava tvíburasystur. Dætur Benedikt Jónssonar frá Hólum í Hjaltadal og seinni konu hans Kristínar Baldvinsdóttur. Þær bjuggu í Winnipeg. Ættingjar Gullu og Þóris á Litlu-Gröf
Tvær óþekktar konur með barn. Aftan á myndina er skrifað: "Þetta er mynd af konu Jósefs bróður míns, dreng þeirra og mér, tekin á flötinni framan við húsið okkar. Það sést á fram gluggana neðanverða. Þetta er tekið í sumar meðan ég var heima."
Fólkið á myndinni er óþekkt. Bak við er bjálkahús og er hún tekin í Vesturheimi. Aftan á myndina er skrifað: "Back row from left ti right. Evelyn, Bobby, myself, Frank, Berniel, Vernaa, Alvin, Irene, Verla, Keith. Baby Ruth not here. 1936."
Ljósmynd í cab stærð. Á myndinni eru óþekkt fjölskylda, hjón með fimm börn. Tvær af stúlkunum gætu verið þær sömu og á mynd nr. 26. Myndin er tekin á ljósmyndastofu í Winnipeg.
Þrír óþekktir karlmenn og ein kona fyrir framan hús. Fólki á myndinni er óþekkt. Aftan á myndina er skrifað: Jón bróðir og Alli bróðursonur mömmu á bak við að framan mamma og Siggi bróðir."
Karlmaðurinn í aftari röðinni er Sigurður J. Gíslason. Hitt fólkið er óþekkt. Aftan á myndina er skrifað: "Hún var nærri búin að dáleiða mig, þessi í brúnu kápunni. Karlamðurinn er úr Rvík og heitir Ólafur Guðmundsson. Við erum mikið saman. Stúlkurnar eru stystur. Myndin er tekin við ljós-bommu. Sigurður J. Gíslason."
Fólkið á myndinni er óþekkt en aftan á myndina eru ritaðar eftirfarandi upplýsingar. "Frá vinstri til hægri. ?, Jóhanna kona mín, Margrét systir mín, Þorbjörg móðir mín, Florence dóttir Margrétar, Thorsteina, Sigríður dóttir mín, ég og yngsta dóttir mín."
Ættingjar Gullu af Vestur íslenskum ættum. Aftan á mynd stendur: Frá vinstri til hægri: Peria, Judy's friend (Italian), George, Gloria, Judy, Laufey, Elin, Viola.
Átta manna hópur, sitjandi fyrir framan hús. Fólkið er óþekkt. Aftan á myndina er skráður texti en hann er ólæsilegur þar sem límmiði hefur verið límdur ofan í textann.
Á myndinni er Steinunn Jónsdóttir frá Syðstu-Grund ásamt hluta af fjölskyldu sinni í Vesturheimi. Aftan á myndina er skrifað: "Til vinstri í efri röð. Jóna yngsta dóttir mín, Svan Ingi fóstursonur minn. Ég sjálf. Steinunna Jónsdóttir. Anna næst yngsta dóttir mín. Tvíbura dætur hennar Svanna Steinunn og ...." (meira sést ekki af textanum þar sem límmiði hefur verið límdur ofan á textann).
Á myndinni er Stefanía Magnússon, sem bjó í Gimli í Manitoba, ásamt óþekktri konu og þremur óþekktum karlmönnum. Aftan á myndina er skrifað: "Ég sendi mynd af mér 85 ára ég er kerlingin í svarta kjólnu við eigum öll afmæli í feb. Mrs. Stefanía Magnússon, Box 10, Gmili P.O. Manitoba Canada."
Passamynd. Stúlkan á myndinni er Karen, 10 ára gömul. Hún er afkomandi Reykjavallahjóna Guðríðar og Guðmundar Skúlasonar. Dórri Matthíasar Þorfinnssonar.
Stúlkurnar á myndinni eru Allison Ral 7 ára og Amber Jill 4 ára. Aftan á myndinni, neðan við nöfn og aldur stúlknanna stendur: "Gíslason Arborg Mane Canada. Dec 1980."
Fólkið á myndinni er óþekkt. Aftan á myndina er rituð eftirfarandi jólakveðja: "August 1919 Svevig. Glædelig julog mange velige hilser fra deres danske venner E og S Paulli."
Fólkið á myndinni er óþekkt en aftan á hana eru skrifaðar þessar upplýsingar: "Við systurnar Stefanía, Ólöf, ég og maðurinn minn, Páll, daginn sem við giftum okkur, 1970." Bætt hefur verið við þeim upplýsingum að sé sem merkir myndina sé Ingibjörg og þær séu dótur Ingólfs Eiríkssonar.
Samkvæmt upplýsingum á myndinni er maðurinn á myndinni annað hvort Sigurbjörn Bjarnason eða Guðmundur Bjarnason, bróðir Bjargar Bjarnadóttur í Borgargerði, en þeir fóru báðir til Vesturheims. Myndin var send Björgu Bjarnadóttur í Borgargerði.
Mynd tekin fyrir utan skóla í Bandaríkjunum sem heitir Thora B. Gardiner school og er í Oregon. Skólinn er nefndur í höfuðið á Þóru Benediktsdóttur (Thora B. Gardiner) sem var systir Sigríðar Benediktsdóttur á Litlu-Gröf.
Mynd tekin fyrir utan skóla í Bandaríkjunum sem heitir Thora B. Gardiner Middle school og er í Oregon. Skólinn er nefndur í höfuðið á Þóru Benediktsdóttur (Thora B. Gardiner) sem var systir Sigríðar Benediktsdóttur á Litlu-Gröf.
Mynd líklega tekin í Kanada. Aftan á mynd er skrifað: Þetta er mynd af fjallkonunni s.l. sumar, tekið þegar hún var að ganga upp á pallinn. Ég hjálpaði henni að fara í búninginn. Og tvær hirðmeyjar.
Konan í upphlutnum heitir Helga Jónsdóttir og sú í kjólnum heitir Hildur. Aftan á myndina er skrifað: "Reykjavík 21/3 1912. Kæra Guðbjörg mín. Jeg hef að öllum líkindum ekki breyst svo mikið að þú þekkir mig ekki, en samt þori jeg ekki annað en segja þjér að jeg er sú sem er í upphlutnum, en Hildur sem er á kjólnum. Skilaður kærri kveðju til alls heimilisfólksins, svo er jeg. Þín einlæg frænka Helga Jónsdóttir."