Aðalgata 16, Sýslumannshús eða Michelsenshús kringum árið 1940. Þar hefur verið stundaður verslunar- og veitingarekstur óslitið frá 193?. Takið eftir skiltunum á húsinu. Myndin er tekin um það leyti er Michelsens fjölskyldan bjó í því. Til hægri var verslun og verkstæði Frank Michelsen en Sápuhúsið vinstra megin. Fjölskyldan keypti húsið árið 1912 og hóf Frank þar verslun og verkstæðisrekstur fljótlega eftir það. Húsið var áður nefnt Sýslumannshús í daglegu tali, enda höfðu þrír sýslumenn búið í því fyrir þann tíma, en formlegt nafn þess var Laufás, eftir prestsetrinu í Eyjafirði.
Sýslumannshús við Aðalgötu 16 á Sauðárkróki - síðar Byggingavöruverslun Kaupfélags Skagfirðinga og loks Kaffi Krókur. Húsið brann - en samsvarandi hús var byggt í þess stað. (ca. 1960-1970).
Ljósmynd í stærðinni 9 x9 sm. Svarthvít pappírskópía. Á myndinni eru, fv., húsin nr 20, 18 (Blöndalshús), 16 og 14 við Aðalgötu á Sauðárkróki. Þá sést í þak Aðalgötu 19. Myndin er líklega tekin af svölum húss nr 21 í við Aðalgötu.
Ljósmynd í stærðinni 9 x 9 sm. Á myndinni sjást m.a. húsin við Aðalgötu 16, 14, 12 og 10 við Aðalgötu og Sauðárkrókskirkja. Myndin er tekin af svölum hússins við Aðalgötu 21.