Viðtöl við Stefán Stefánsson sem ýmist er kenndur við Brenniborg eða Brúnastaði. Stefán er 97 ára þegar viðtalið er tekið. Stefán fæddist á Löngumýri og ólst upp á Skíðastöðum., fór í fóstur á nokkra staði eftir að hafa misst föður sinn 12 ára og eftir það suður til sjós. Lærði söðlasmíði á Fjalli og gekk í Flensborgarskólann. Stefán bjó 20 ár á Blönduósi og var einnig bóndi á Brenniborg. Rætt um kenningar kristninnar og líf eftir dauðann. Einnig rætt um ýmsa samferðamenn Stefáns. Að lokum segir Stefán frá dulrænu atviki er hann var við smíðar og kaupavinnu á Sjávarborg.
Skýrsla er tölvuprentuð á 38 pappírsarkir í A4 stærð. Skýrslan er nr 24/2003-2004. Hún er um fornleifaskráningu fyrir aðalskipulag á Sjávarborg. Höfundar eru Katrín Gunnarsdóttir og Sigríður Sigurðardóttir. Ástand skjalsins er gott.
Eldri borgarar skemmta sér í Ljósheimum, sennilega á þorrablóti Verkakvennafélags Öldunnar árið 2000. Næst frá vinstri Jóhann Friðberg Sveinsson (1933-), Pálmi Anton Runólfsson (1920-2012), Anna Steinunn Eiríksdóttir (1934-), Sigríður Ögmundsdóttir (1921-2000), Árni Magnús Jónsson (1922-2009) og Jón Sigurður Eiríksson (1929-).
Eldri borgarar skemma sér í Ljósheimum, hugsanlega á þorrablóti Verkakvennafélagsins Öldunnar árið 2000. F.v. Hólmfríður Sveinsdóttir (1916-2007), Kristín Bjarnadóttir (1925-), Agnar Hermannsson (1933-2014) og Anna Lilja Leósdóttir (1941-).
Þorrablót Verkakvennafélags Öldunnar í Ljósheimum árið 2000. Næst frá vinstri Herdís Ólafsdóttir (1911-2008) Brennigerði, Valgarð Einarsson (1927-2005) Ási, Guðrún Erla Ásgrímsdóttir (1927-2013) og Svavar Einar Einarsson (1920-2008). Næst frá hægri Þórður Þórarinsson (1930-), Sólveig Júlíusdóttir (1929-) og Jóhann Guðmundsson og Stefanía jónsdóttir.
Hugsanlega þorrablót Verkakvennafélagsins Öldunnar í Ljósheimum árið 2000. Næstar eru Marsibil Hólm Agnarsdóttir (1935-) t.v. og Baldvina Þorvaldsdóttir (1931-2014).
Álitið er handskrifað á pappírsörk í folio stærð. Það varðar heimild til sölu á jarðeigninni Sjávarborg til Sauðárkrókshrepps. Ástands skjalsins er gott.
Afrit, vélritað á pappírsörk í folio stærð. Bréf til Vegamálastjóra. Varðar skaðabótakröfu vegna æðarvarps í landi Sjávarborgar og í landi Hellulands. Ástand skjalsins er gott.