Innbundin handskrifuð bók í lélegu ástandi bókakápa rifin og einnig blaðsíður en bókin er bundin saman með bandi og vel læsileg. Stofnfundabók félagsins.
Syðra-Skörðugili 1976. Perla 3084 frá Gufunesi, Mos. rauð. (IS1956225286). Talið frá hægri: Elvar, Einar og Sigurjón Rúnar og Sigurjón (Dúddi) afi þeirra heldur í hana.
Syðra-Skörðugili 1976. Perla 3084 frá Gufunesi, Mos. rauð. (IS1956225286). Knapar frá hægri: Elvar, Einar, Sigurjón Rúnar og Dúddi afi þeirra heldur í hana.
Syðra-Skörðugili júlí 1993. Einar E. Gíslason (standandi), F.v. Einar E. Einarsson á Þránni, Nökkvasyni, Elvar E. Einarsson á Fjalari, Sörlasyni. Eyþór Einarsson á Sneglu, Sörladóttur og Sigurjón Pálmi Einarsson á Léttir, Hervarssyni.
Apríl 1969. Blakkur 657 frá Sauðagilsá, brúnn. (IS1961155460). AE 7,85. ( bygg.dómur 8,25). Eigandinn, Sigurjón Jónasson, Syðra-Skörðugili heldur í hann.
Í hlöðunni á Syðra-Skörðugili 1989. Gelding, Steinn Steinsson dýralæknir að störfum, Matti og Dúddi halda hestinum niðri en Einar Gíslason klippir hófana á trippinu meðan það sefur.
Myndin tekin á Hesti sumarið 1965. Sara 3211 frá Hesti, ljósjörp stjörnótt. (IS1959235589). AE 8,22. Knapi og eigandi Einar E. Gíslason, Syðra-Skörðugili.
Syðra-Skörðugil veturinn 1970. Tolli 797 frá Syðra-Skörðugili, Brúntvístjörnóttur með glampa í hægra auga. (IS1969157500). AE 7,83. Sigurjón Jónasson heldur í hann. Snjókoma.
Syðra-Skörðugili veturinn 1970. Tolli 797 frá Syðra-Skörðugili, Brúntvístjörnóttur með glampa í hægra auga. (IS1969157500). AE 7,83. Sigurjón Jónasson, heldur í hann. Gömlu fjárhúsin í baksýn sem notuð voru til 1974.
Búdagur lóðdýaræktenda var haldinn í Loðfeldi búi Reynis Barðdals haustið 1999. Frá vinstri Svavar Haraldur Stefánsson, (1952-). Brautarholti, Kristinn Gamalíelson Þórustöðum II í Ölfusi, og Þórarinn Guðvarðarson (1930-) Minni- Reykjum í Fljótum.
Búdagur loðdýrabænda var haldinn í Loðfeldi búi Reynis Barðdals haustið 1996. Í fremri hópnum má þekkja f.v. Jón Hjört Stefánsson (á bak við), Einar E. Gíslason, Syðra-Skörðugili, Kristján Jónsson, Óslandi, Harald Stefánsson, Brautarholti og óþekktur.
Efri röð frá vinstri: Guðrún Ásgrímsdóttir, Efra-Ási. Sigrún Júlíusdóttir, Syðra-Skörðugili. Fremri röð frá vinstri: Þorsteinn Jónsson bóndi í Sólheimum Mýrdal V-Skaftafellss. Gerður Sigurðardóttir, Sleitustöðum.
Skýrsla er tölvuprentuð á 19 pappírsarkir í A4 stærð. Skýrslan er nr 15/2003. Hún er um fornleifaskráningu fyrir deiliskipulag vegna byggingarreita á Syðra-Skörðugili. Höfundar eru Katrín Gunnarsdóttir og Sigríður Sigurðardóttir. Ástand skjalsins er gott.
Uppkast að bréfi frá Sigurjóni, skrifað að Syðra-Skörðugili. Bréfið er svarbréf við auglýsingu sem kom í útvarpinu þar sem óskað var eftir bústjóra á jörð skammt frá Reykjavík. Sigurjón segir stuttlega frá sjálfum sér og spyr jafnan frekari upplýsinga varðandi starfið.