Steingrímur Jónsson (1844-1935) b. Silfrastöðum- kona hans- Kristín E. Árnadóttir (1858-1907)- og sonur þeirra Jóhannes Steingrímsson (1883-1968) b Silfrastöðum Skag.
Listinn er handskrifaður á tvær pappírsarkir í folio broti, alls átta síður. Hann nær yfir hluti sem keyptir hafa verið í safnið, óljóst er á hvaða tímabili. Listinn er sundurliðaður eftir bæjum. Ástand skjalsins er gott.
Listinn er handskrifaður á þrettán pappírsarkir í stærðinni 22.8 x 13,7 cm. Hann er sundurliðaður eftir frá hvaða bæjum munirnir eru keyptir. Ástand skjalsins er gott.
Stílabókin er í stærðinni 20,1 x 16,5 cm. Bókin inniheldur ýmsar frásagnir, má. dagbókarbrot, frásögn úr útvarpinu, ættfræði, endurminningar Gísla á Hofi í Svarfaðardal, og ýmis sundurleit fróðleiksbrot um Siglufjarðarskarð. Framan á bókina er skrifað: "Frá Silfrastöðum og Egilsá. Frá Neskoti. Sögn um Siglufjarðarskarð. Ástand bókarinnar er gott. Með liggur minnisblað sem Hjalti Pálsson hefur skrifað um innihald bókarinnar.
Jóhann Jóhannesson sækir um byggingarleyfi fyrir bogaskemmu á Silfrastöðum. Skemman er af gerðinni Nissen og er innflutt af Globus hf. Umsókn dagsett 23.08.1974. Teikning fylgir ekki.
Jóhsnnrd Jóhannsson sækir um byggingarleyfi fyrir fjárhúsi með vélgengum áburðarkjallara á Silfrastöðum. Teikning eftir eiganda. Umsókn dagsett 01.06.1975. Teikning fylgir ekki.
Jóhann Jóhannesson sækir um byggingarleyfi fyrir fjárhúsi og þurrheyshlöðu á Silfrastöðum. Byggt verður úr járni og timbri á steyptum grunni. Umsókn dagsett 20.06.1973. Teikning fylgir ekki.