4 bréf, pöntunarbréf fyrir landabréf fyrir skóla. Námskrá sem gefin var út árið 1929 fylgibréf þar sem kennarar eru beðnir um að svara spurningum til að vinna fyrri skólanámskrá upp. Bréf varðandi landabréfa. Bréf frá Pétri Guðmundssyni en þar segir hann hvernig vinna megi með landakortið Afríku.
Kortið sýnir suðvesturhluta Íslands. Það er gefið út af Geodetic Institute. Brotið í 21 hluta og efsti hlutinn hægra megin hefur rifnað frá og glatast.
Kortið sýnir Fljót í Skagafirði. Inn á það eru teiknaðar ýmsar merkingar. Það er gefið úr af Rarik og merkingu þess stendur: "Siglufjörður. Aðveitustöð Skeiðsfossvirkjun." Kortið hefur rifnað á brotum og er illa farið.
Kort af Reykjavík og Seltjarnarnes. Teiknað hefur Ágúst Böðvarsson eftir uppdráttum bæjarins og eigin mælingu 1947. Endurskoðað 1951. Prentað hjá Gæodætisk Institut i Kaupmannahöfn. Utan á korti er auglýsing frá Flugfélagi Íslands h.f og ferðaáætlun Strætisvagna Reykjavíkur.
Tvö eintök af landakorti. Uppdráttur Íslands , blað 64, Vatnahjallavegur. Neðst í vinstra horni stendur: "Uppdráttur Íslands smækkaður niður í 1:200 000. Sýslumörk og landamerki samkævmt skoðun eigenda Ábæjar og Nýjabæjar í Skagafirði. Reykjavík 3. maí 1966 Zophonías Pálsson verkefr F.V.Í."