Kaffisamsæti. Tilefni og staðsetning óþekkt. Á myndinni má þekkja Þorbjörn Árnason (með gleraugu, blómapottur á veggnum fyrir ofan hann) og Ómar Kjartasson (með dokkt hár og rendur á peysuermi).
Mögulega Norðurlandsmót í Sundlaug Sauðárkróks. María Valgarðsdóttir næst, í bakgrunni er Sigurlína Hilmarsdóttir, Þorbjörn Árnason og Jón Árnason frá Akureyri bakvið Maríu.
Sundfólk UMSS á Norðurlandsmóti á Akureyri 1954. Frá vinstri: Guðrún Pálsdóttir - Guðný Dóra Rögnvaldsdóttir - Svanborg Guðjónsdóttir - Ágústa Jónsdóttir - Herdís Stefánsdóttir - Ingibjörg Harðardóttir - Þorbjörn Árnason - fyrir framan hann er Anna Katrín Hjaltadóttir og þar fyrir framan er María Valgarðsdóttir - Sveinn Marteinsson - fyrir fram hann er Helga Friðriksdóttir - Birgir Guðjónsson (1948-) Jón Björn Magnússon - Birgir Hans Málfreðsson.
Frá undirritun samnings um uppbyggingu Fjölbrautaskólans á Sauðárkróki milli sveitarfélaga á Norðurlandi vestra og ríkisins, sem fram fór í verknámshúsi skólans í desember 1990. Þá var nafni skólans breytt í Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra á Sauðárkróki. Þekkja má við enda borðsins f.v. Svavar Gestsson menntamálaráðherra, Þorbjörn Árnason formann skólanefndar, Jón F. Hjartarson skólameistara og Ragnar Arnalds þingmann (eða ráðherra).
Frá undirritun samnings um byggingu bóknámshúss við Fjölbrautaskólann á Sauðárkróki vorið 1991 milli ríkisins annars vegar og Héraðsnefndar Skagafjarðar hinsvegar. F.v Magnús H. Sigurjónsson framkvæmdastjóri héraðsnefndar, Svavar Gestsson menntamálaráðherra, Ólafur Ragnar Grímsson fjármálaráðherra, Ragnar Arnalds formaður bygginganefndar bóknámshúss og Þorbjörn Árnason form. skólanefndar.