Samkoma eldri borgara í Bifröst. Við borðið t.v. eru Valberg Hannesson og Áshildur Öfjörð. Næsta borð f.v. óþekkt kona við vegginn, Steingrímur Friðriksson, Kristján Sölvason, María Ragnarsdóttir Aadnegard, Sigurlaug Antonsdóttir og Kristín Sölvadóttir. Fjærst við vegginn er svo Herdís Sigurjónsdóttir.
Frá vinstri Jóna Guðrún Gísladóttir (1944), Jófríður Tobíasdóttir (1939-) og Björgvin Jónsson (1929-2000). Frá skemmtun Rökkurkórsins í Miðgarði. (Hugsanlega 20 ára afmælisfagnaður kórsins vorið 1999).
Talið frá vinstri: Kristín Sölvadóttir- Björgvin Jónsson og Marteinn Friðriksson. Myndin er tekin í Safnahúsinu á Sauðárkróki 23. janúar 1980 eða 1981. Gefandi: Úr dánarbúi Kristínar Sölvadóttur- Sauðárkróki. 09.07.2003.
Auglýsing í búðarglugga (sennilega á Sæluviku). Alþýðuhúsið að auglýsa skemmtun. Halli og Stína sýna dans, Sigurdór syngur og hljómsveitin Rómó leikur (samanber miðjumyndina). Rómó var fyrsta alvöru hljómsveit Geirmundar (starfaði 1958-1965). Hljómsveitin var tríó og voru meðlimir bræðurnir Geirmundur og Gunnlaugur Valtýssynir og svo Jón Sæmundsson, Fosshóli. (ca. um 1960).
Ljósmyndin er í heillegu ástandi en nokkuð skemmd af óhreinindum. Á myndinni er stór hópur af spariklæddu fólki. Fólk og staðsetning óþekkt, sem og tilefnið.