Gögn sem komu úr fórum Rögnvaldar Jónssonar: Fjallskilareglugjörð fyrir Skagafjarðarsýslu frá 1906. Verðlagsskrá fyrir Skagafjarðarsýslu frá 16. maí 1935 - jafnlengdar 1936. Félagsmannatal Kaupfélags Skagfirðinga frá 1950. Bréf frá innlánsdeild Kaupfélags Skagfiðinga - e.d.
Frétt birt í Einherja í október 1962 þar sem er yfirlit yfir hæstu útsvör ásamt aðstöðugjaldi atvinnurekenda. Hæsta útsvarið bar Kaupfélag Skagfirðinga eða 534.200 kr. Hæsta útsvar einstaklinga bar Ole Bang lyfsali eða 33.900 kr.
Viðskiptabækur hjá innlánsdeild Kaupfélags Skagfirðinga Sauðárkróks. Önnur þeirra er merkt Skarphéðni G Þórissyni og hin Arnþóri Blöndal. Þeir voru á Litlu-Gröf á sumrin.
Magnús Blöndal faðir Arnþórs hafði alist upp á Litlu-Gröf með Gullu og Þóri.
Álit og tillögur í málefnum MS og KS. Flutningsmenn tillögunnar voru Jón Jónsson Hofi á Höfðaströnd, Gunnlaugur Björnsson á Brimnesi, Kristján Karlsson skólastjóri á Hólum, sr. Lárus Arnórsson Miklabæ og Arngrímur Sigurðsson í Litlu-Gröf.
Minnisbækur Guðjóns Ingimundarsonar, flestar þeirra tengjast bæjarstjórnarmálum en einnig má finna þar punkta um starfsemi hans innan KS og ungmennafélaganna. Jafnframt er elsta minnisbókin frá því hann var á Laugarvatni.
Úr vefnaðarvörudeild KS (syðri búð). T.h. Hólmfríður Friðriksdóttir. Hin konan gæti verið Marta Sigtryggsdóttir (ca. 1960-1970). Myndin er sú sama og Hcab 161.
Deildarfundur Sauðárkróksdeildar KS í Bifröst (1962). Næst í mynd f.v. Hreinn Sigurðsson - óþekktur og Bragi Pálsson. Aftar f.v. Héðinn Ásgrímsson (aftan við óþekktan) - Erla Einarsdóttir - Rögnvaldur Finnbogason (aftan við Braga) - Selma Magnúsdóttir (ber yfir öxlina á Rögnvaldi). Kristján Skarphéðinsson er lengst t.h.
Ýmis gögn tengd starfsemi Kaupfélagi Skagfirðinga sem komu úr fórum Guðjóns Ingimundarsonar. Guðjón var endurskoðandi Kaupfélags Skagfirðinga til fjölda ára, sat í stjórn Menningarsjóðs KS í mörg ár og var formaður fræðuslunefndar þess um skeið.
Viðskipti Arngríms Sigurðssonar við Kaupfjelag Skagfirðinga. Merkt er ýmist við Freðkjöt eða Saltkjöt. Blað 1 er dagsett 22.09.1932 Blað 2 er dagsett 03.10.1932 Blað 3 er dagsett 13.10.1932
Erindi til stjórnar og framkvæmdastjóra Kaupfélags Skagfirðinga, stílað á Svein Guðmundsson sem var þá starfandi framkvæmdastjóri. Undir erindið ritar Guðmundur Björnsson trésmiður sem hóf störf sem verkstæðisformaður á trésmíðaverkstæði K.S. árið 1950.