Úr sútunarverksmiðju Loðskinns á Sauðárkróki. Lengst til vinstri er Þorbjörn Árnason, lengst til hægri Karl Bjarnason og ónafngreindur viðskiptavinur að skoða vinnsluferlið.
Myndin er tekin við loðdýrabú Reynis Barðdal. F.v.: Reynir Barðdal, Þorbjörn Árnason, ónafngreindur viðskiptavinur og Þórdís Þormóðsdóttir (fyrri kona Þorbjarnar).
Vinnsla í Sútunarverksmiðju Loðskinns á Sauðárkróki. Efst á myndinni eru Jónheiður Sigurðardóttir og Halldóra Björnsdóttir. Framan við vagninn með gærunum eru f.v. Karl Bjarnason, Þorbjörn Árnason og ónafngreind kona. Lengst til hægri er Alexander Róbert Jónsson.
Á kaffistofu Sútunarverksmiðju Loðskinns. F.v.: Baldvin Þóroddsson (starfaði sem tæknimaður í Þýskalandi en fyrirtæki sem hann starfaði hjá seldi Loðskinn ýmis efni til framleiðslu sinnar), Karl Bjarnason, Þorbjörn Árnason, Oddur Eiríksson.