Fundargerðir Skagfirðingafélagsins í Reykjavík frá upphafi, 6. desember 1936, til ársins 1960. Markmið félagsins í upphafi var að vinna að því að setja á stofn mennta- og menningarsetur við Reykjarhól í Seyluhreppi (Varmahlíð). Starfssemi félagsins verður fjölbreyttari þegar á líður. Nafn félagsins var fyrst "Varmahlíð" en var strax á 3ja fundi breytt í Skagfirðingafélagið í Reykjavík.
Frá vinstri: Sigurður Ólafsson Kárastöðum- Þórarinn Sigurjónsson frá Garði- Árni Hafstað Vík og Jón Sigurðsson Reynistað. Guðjón Ingimundarson snýr baki í ljósmyndarann. Myndin er tekin þegar 4 fyrstu ungmennafélagar í Skagafirði voru heiðraðir. Safn Kr. C. Magnússonar.
Nefnd til undirbúnings 25 ára afmælis Hólaskóla. Fremri röð frá vinstri: Albert Kristjánsson Páfastöðum- Gísli Sigurðsson Víðivöllum og Ólafur Sigurðsson Hellulandi. Aftari röð frá vinstri : Árni Hafstað Vík- Flóvent Jóhannsson Hólum- Geirfinnur Trausti Friðfinnsson Hólum og Árni Árnason Kálfsstöðum.
Hafsteinsstaðahjón- Jón Jónsson og Steinunn Árnadóttir og börn þeirra frá vinstri: Jón Jónsson- Árni Jónsson- Valgerður Jónsdóttir og Sigríður Jónsdóttir.