Bréfið er handskrifað á pappírsörk í A4 broti, alls tvær skrifaðar síður. Það varðar umfjöllum fundar á Hofsósi um breytingar á reglugerð fyrir fiskveiðar við Drangey. Reifuð er niðurstaða fundarins og undir bréfið rita 10 fundarmenn.
Aftari röð frá vinstri: Chr. Popp Sauðárkróki- Pétur Pétursson verslunarmaður- Sigurður Pálsson læknir og Kristján Blöndal Sauðárkróki. Fremri röð frá vinstri: Guðmundur Einarsson frá Hraunum- Erlendur Pálsson Hofsósi og Stefán Jónsson faktor. Safn Kr.C. Magnússonar Sauðárkróki.
Guðmundur Einarsson verslunarstjóri á Hofsósi- kona hans Jóhanna Stefánsdóttir og börn þeirra talið frá vinstri: Kristín Ingveldur Guðmundsdóttir- Stefán Jóhann Guðmundsson og Jórunn Guðmundsdóttir.
Álitið er handskrifað á pappírsörk í folio stærð. Yfirskrift þess er "Nefndarálit í málinu um breyting á Drangeyjarreglugjörð". Undir það rita þrír nefndarmenn.