Bókin er merkt sem III árgangur 1912, 1. blað. Fyrstur ritar Ólafur Sigurðsson Hellulandi 1912. Bókin inniheldur handskrifaðar skemmtisögur, gátur , smælki og ljóð eftir hina ýmsu ritara. Þar eru hinar ýmsu hugleiðingar t.d .Sjö grundvallareglur góðs uppeldis, Andlegur auður ( bækur) .
Myndin er tekin í fermingarveislu Auðuns Blöndal. Talið frá vinstri: Valgarð Blöndal- Meldrup þýskur maður er rak um tíma hótelið í Villa Nova- Árni Blöndal- Ólafur Sigurðsson Hellulandi- Guðrún Steinsdóttir Reynistað- Jóhanna Blöndal og Auðunn Blöndal.
Nefnd til undirbúnings 25 ára afmælis Hólaskóla. Fremri röð frá vinstri: Albert Kristjánsson Páfastöðum- Gísli Sigurðsson Víðivöllum og Ólafur Sigurðsson Hellulandi. Aftari röð frá vinstri : Árni Hafstað Vík- Flóvent Jóhannsson Hólum- Geirfinnur Trausti Friðfinnsson Hólum og Árni Árnason Kálfsstöðum.