Jónas ræðir við Kristmund Bjarnason frá Sjávarborg um Sauðárkrók og þróun kaupstaðarins. (0:00:00-0:24:35) Jónas ræðir við Halldór Jónsson þá forseta bæjarstjórnar, um bæjarmál á Sauðárkróki (0:24:35 til enda)
Samningur um réttindi á heitu vatni og boranir eftir heitu vatni í Sjávarborgarlandi árið 1951. Samningsdrögin liggja með. Samninginn undirrita Björgvin Bjarnason þáverandi bæjarstjóri og þáverandi eigendur Sjávarborgar og Borgargerðis; Þorsteinn Árnason, Haraldur Árnason og Kristmundur Bjarnason.
Vélritað afrit af þinggjaldabókum úr Sauðárhrepp hinum forna frá árunum 1871-1899 ásamt einu bréfi frá Kristmundi sem varðar afhendingu skjalanna til safnsins. Upphaflegu gögnin virðist hafa verið frá 1871-1899 en ekki er vitað hvenær afritið var gert.