Aftan á mynd stendur Jórunn Helga Jóhannessdóttir f. 1849-1882 Réttarholti. Í skráningum safnsins stendur að þessi kona sé Steinunn Hallsdóttir samkvæmt vis 505. Ef litið er til þess að Jórunn þessi hafi látist árið 1882 þá eru ekki miklar líkur á að Arnór hafi myndað þar sem hann er ekki farin að starfa sem ljósmyndari fyrr en um mitt ár 1883. En þetta eru eingöngu tilgátur.
Börn á hestbaki fyrir framan Nýja bæ á Hólum. Kristinn Michelsen með hatt, Aage stendur við hestin. Á hestinum eru Edda Michelsen (1943-), Anna Lísa Michelsen (1943-) og Jörgen Frank Michelsen (1941 - 1998).
Sunnan við L. Poppsverslun. Á myndinni eru Christian Popp, Paula Popp og sonur þeirra Louis er á hesetinum, frk. Ingrid Hansen kennslukona og óvíst er um nafn mannsins til hægri.
Svartahúsið við Aðalgötu 16b. óþekktar konur en við myndina stendur ábúendur í Svartahúsinu eru Guðmundur Sigvaldsson (verkamaður í norðurenda) og Valdimar (jónsi) sjómaður í suðurenda.