Stúlkur í Steinsstaðalaug. F.v.: Hansína Sigurðardóttir (vinnukona hjá Jónasi lækni), Pála Sveinsdóttir (Pála Magg), Ásta Jónsdóttir, óþekkt, Ingibjörg Jónsdóttir (Imba læknis) og Stefanía Sigurðardóttir (sýslumanns). (Þessi mynd gæti verið tekin um 1930).
Sigurður Egilsson ræðir við Reimar Helgason bónda á Bakka í Vallhólmi, Seyluhreppi. Hann segir frá tildrögum þess að hann settist að í Vallhólmi. Einnig sundkennslu Stefáns Vagnssonar í Vallalaug. Jafnframt segir hann frá hjónunum Jóhanni og Sigurlaugu á Löngumýri, kaupum sínum á Bakka og gamansögu af Sigurði í Kaupfélaginu. Loks ræða þeir um Skagafjörðinn almennt og hestaeign Reimars.
Gögn úr fórum Ungmennafélagsins Glóðafeyki í Akrahreppi sem voru varðveitt á Stóru-Ökrum, Svanhildur Pálsdóttir afhenti. Afhendingin inniheldur 1 innbundna fundargerðarbók, fylgigögn bókhalds, efnahags- og rekstrarreikninga, ársskýrslur, félagatal, bréf og erindi sem tengjast starfsemi og rekstri á Umf. Glóðafeyki. Skjölin voru grófflokkuð en farið var í að aðskilja og flokka þau betur eftir ártölum og hvers kyns þau voru. Úr safninu voru grisjaðir 4 plastvasar og brún pappírsumslög í A5 og A4 stærð. Hefti og bréfaklemmur voru hreinsuð úr safninu, þar sem mikið af því var orðið mjög ryðgað og byrjað að skemma út frá sér.
Í safninu er póstkort með mynd af sundkonu stinga sér til sunds (líklega í tengslum við vígslu sundlaugarinnar í Varmahlíð) og happdrættismiði fyrir sundlaug Skagfirðinga í Varmahlíð. Ekki er vitað hver afhendir eða hvenær.
Stundaskrá með yfirliti yfir afnot ákveðinna hópa af sundlaug Sauðárkróks árið 2002 og samskipti Guðjóns við Sveitarfélagið vegna gjafar hans og eiginkonu hans, Ingibjargar Kristjánsdóttur, til sundlaugarinnar.