Bréf er varða eignarlönd Steinunnar og Jónasar, Hátún og Miklagarð. Ýmis bréf sem fara á milli eiganda og dóms- og kirkjumálaráðuneytis, kjörinna fulltrúa, Sýslumanns Skagafjarðarsýslu og annarra er málið snertir. Deilt var um engjaskipti sem framkvæmd voru á milli jarðanna Hátúns, Miklagarðs, Glaumbæjar og Jaðars. Sum bréfin hafa tvístrast og eru því einungis annað hvort bara fyrri hluti bréfs eða seinni hluti. Einnig er talsvert af uppköstum að bréfum.
Bréf frá Kristínu Símonardóttur á Kolkuósi til Þórarins Jónssonar hreppstjóra og skólaráðsformanns vegna umsóknar Karlottu Jóhannesardóttur um starf við Húsmæðraskólann á Blönduósi. Kristín telur upp kosti og hæfileika Karlottu í bréfinu og gefur henni sín bestu meðmæli.
Bréf frá Kristínu Símonardóttur á Kolkuósi til Þórarins Jónssonar hreppstjóra og skólaráðsformanns vegna umsóknar Karlottu Jóhannesardóttur um starf við Húsmæðraskólann á Blönduósi. Einnig umslag utan af bréfi til Þórarins Jónssonar sem líklega hefur innihaldið umsókn Karlottu um starfið ásamt vitnisburði frá þeim dönsku skólum sem hún stundaði nám við.
4 bréf, pöntunarbréf fyrir landabréf fyrir skóla. Námskrá sem gefin var út árið 1929 fylgibréf þar sem kennarar eru beðnir um að svara spurningum til að vinna fyrri skólanámskrá upp. Bréf varðandi landabréfa. Bréf frá Pétri Guðmundssyni en þar segir hann hvernig vinna megi með landakortið Afríku.
Bréf til Hrefnu Sigmundsdóttur í Vestmannaeyjum. Sigurður skrifar pennavinkonu sinni og segir henni frá því hvað hefur á daga hans drifið frá því hann skrifaði henni síðast.