Um er að ræða vitnisburð um landamerki Reykja í Tungusveit sem gefin var af Arngrími Jónssyni árið 1651 og vottaður af Magnúsi Jónssyni og Þórólfi Jónssyni 1657. Um þetta bréf hefur dr. Einar G. Pétursson ritað grein í ritinu Brageyra léð Kristjáni Eiríkssyni sextugum sem kom út árið 2005. Greinin heitir "Skagfirskt bréf frá 17. öld".
Frá vinstri: Steinunn Jónsdóttir, 1850-1932, kona Árna Eiríkssonar, Reykju í Tungusveit. Guðrún Árnadóttir, f. 17/6 1887, kona Ingimundar Árnasonar fulltrúa.
Jarðakort eða gróðurfarskort fyrir Tunguháls II, Bjarmaland, Hyrna, Laugarbakka, Reykjaborg, Reyki. Kortin gerð 1994 til 1996 af Hjalta Þórðarsyni / Búnaðarsambandi Eyjafjarðar.
Listinn er handskrifaður á þrjár pappírsarkir í A4 stærð. Yfirskrift hans er "munir fyrir byggðasafn." Listaðir eru upp munir á ýmsum bæjum í Skagafirði. Ástand skjalsins er gott.
Listinn er handskrifaður á þrettán pappírsarkir í stærðinni 22.8 x 13,7 cm. Hann er sundurliðaður eftir frá hvaða bæjum munirnir eru keyptir. Ástand skjalsins er gott.